top of page

LJÚFFENGUR PARMESAN KJÚKLINGABORGARI

  • Jan 1
  • 1 min read

Ó vá hvað þessi kjúklingaborgari er góður! Parmesan ostur er svo góður og hvað þá sem hjúpur utanum kjúkling í stökku brauði með mozzarella, basilíku, tómötum, klettasalati og hvítlaukssósu. Dásamleg blanda sem þið sjáið ekki eftir að prófa og gefur réttinum þennan ítalska ferskleika.

Fyrir 3-4 3 kjúklingabringur 1 ½ dl Panko rasp 1 ½ dl parmesan ostur 1 egg Cayenne pipar Salt og pipar Ferskur mozzarella ostur, 2 stórar kúlur Klettasalat eða salatblanda Tómatar Fersk basilika Hamborgarabrauð

Hvítlaukssósa 4 msk majónes 2 msk sýrður rjómi 1 hvítlauksrif eða hvítlauksduft 1 msk safi úr sítrónu Laukduft Salt og pipar

Aðferð

  1. Pískið egg í skál. Hrærið saman raspi, rifnum parmesan osti, cayenne pipar, salti og pipar í djúpum diski eða skál.

  2. Skerið kjúklingabringurnar í tvennt langsum þannig að úr verði tvær þunnar sneiðar. Veltið þeim upp úr egginu og síðan parmesanblöndunni.

  3. Bakið í u.þ.b. 25-30 mínútur við 190°C eða þar til kjúklingurinn er fulleldaður.

  4. Skerið mozzarella í sneiðar eða rífið hann og dreifið ofan á bringurnar.

  5. Setjið bringurnar aftur inn í ofn og bakið í 5 mínútur eða þar til osturinn er bráðnaður.

  6. Hitið hamborgarabrauðin í ofni og smyrjið þau svo með hvítlaukssósunni. Dreifið klettasalati á botninn, svo kjúklingi, basiliku tómötum og lokið borgaranum.

Hvítlaukssósa

  1. Hrærið öllum hráefnunum saman. Mæli með að smakka sósuna til.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti


Samstarf við Innnes


Comments


bottom of page