top of page

EINFALDUR BBQ KJÚKLINGABORGARI

  • Feb 8
  • 1 min read

Klassískur réttur sem ég hef gert í mörg ár. Tekur enga stund að útbúa, er svo ljúffengur og allir í fjölskyldunni elska hann. Það er einnig mjög gott að grilla kjúklinginn en annars er afar fljótlegt að elda hann í ofninum. Ef þú vilt einfalda hlutina, er alltaf þægilegt að nota tilbúna sósu, en ég mæli með að prófa heimagerðu sinnepssósuna til að fullkomna máltíðina.


3 kjúklingabringur, skornar í tvennt 1 dl Hunt's Original BBQ sósa 1 tsk salt 1/4 tsk pipar Cheddar ostsneiðar Salatblöð Tómatar, sneiddir Avókadó, sneitt Hamborgarabrauð

Sósa:

1 1/2 dl Heinz majónes 1 tsk hunang 1 tsk gult sinnep 1-2 msk saxað jalapeno (eftir smekk) Salt og pipar eftir smekk ¼ tsk laukduft Safi úr 1/2 lime

Aðferð:

  1. Skerið kjúklingabringurnar í tvennt. Dreifið BBQ sósunni  og kryddið þær með salti og pipar. Penslið BBQ sósunni jafnt yfir kjúklinginn.

  2. Bakið kjúklingabringurnar í ofninum í 25 mínútur við 190°C. Takið þær út og dreifið cheddar ostsneiðum á þær. Haldið svo áfram að baka þær í 5 mínútur eða þar til þær eru eldaðar í gegn. Það er einnig gott að grilla kjúklinginn.

  3. Á meðan kjúklingurinn eldast, blandið saman Heinz majónesi, hunangi, sinnepi, jalapeno, laukdufti, lime safa, salti og pipar í skál. Smakkið til og kryddið eftir smekk. Geymið í kæli þar til borgararnir eru settir saman.

  4. Þegar kjúklingurinn er tilbúin, dreifið þá sósunni á botninn á hamborgarabrauðið, svo salati, kjúklingi (1-2 bita), tómatsneið, avókadó, meiri sósu og jafnvel meiri bbq sósu. Lokið borgaranum og njótið vel! 


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti


Samstarf við Innnes

Comments


bottom of page