top of page

MASSAMAN KARRÝ MEÐ KJÚKLINGI

  • Jan 1
  • 1 min read

Massaman karrý er réttur sem ég panta oft þegar ég fer á tælenska veitingastaði og finnst mér hann afar góður. Ég varð auðvitað að útbúa mína útgáfu af réttinum sem er hollur og ljúffengur með kjúklingi kókosmjólk, rauðu karríi, ananas, kartöflum, baby corn, lauk, hvítlauk og ferskum kóríander borið fram með hrísgrjónum.


3-4 kjúklingabringur frá Rose Poultry 1 msk rautt karrý frá Blue dragon 1 msk Filippo Berio ólífuolía 8 meðalstórar kartöflur 4 gulrætur 125 g baby corn (fersk lítil maískorn en einnig hægt að nota úr dós) 1 laukur 10-12 ananasbitar úr dós + 3 msk ananassafi 2-3 hvítlauksrif Salt og pipar 2 msk rautt karrý frá Blue dragon 1 dós kókosmjólk frá Blue dragon Ferskur kóríander eftir smekk 1 lime, skorið í báta

Borið fram með Tilda Basmati hrísgrjónum

Aðferð

  1. Smátt skerið kjúklinginn og blandið saman við rautt karrí og ólífuolíu í skál.

  2. Skrælið kartöflurnar og skerið í fjóra bita. Sjóðið þær í 25-30 mínútur eða þar til þær eru eldaðar í gegn og mjúkar.

  3. Steikið kjúklinginn upp úr ólífuolíu og takið hann til hliðar. 

  4. Skerið gulræturnar í sneiðar, skerið laukinn og baby corn í bita og steikið upp úr ólífuolíu.

  5. Bætið pressuðu hvítlauksrifi, ananasbitum, ananassafa, kókosmjólk og rauðu karrí saman við og hrærið.

  6. Að lokum bætið kjúkling og kartöflum út í og látið malla við vægan hita í 15-20 mínútur. Saltið og piprið eftir smekk.

  7. Toppið með kóríander og lime bátum og berið fram með hrísgrjónum.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti


Samstarf við Innnes

Comments


bottom of page