DUMPLING SALAT MEÐ EDAMAME & BROKKÓLÍ
- Jan 1
- 1 min read
Ljúffengt salat með kjúklinga dumplings, edamame baunum, brokkólí og fleira girnilegu. Þetta er svo létt og bragðgott.
1 pakkning dumplings með kjúklingi frá Itsu 4 dl edamame baunir 200 g brokkólí Filippo berio ólífuolía til steikingar 1-2 hvítlauksrif 2 msk rautt karrí frá Blue dragon 2 msk sesamolía frá Blue dragon 2 msk ólífuolía Salt & pipar Pak choi salat (má nota annað salat) 1-2 vorlaukar Stappaður fetaostur eftir smekk 1 msk sesamfræ Ferskur kóríander Radísuspírur eða alfalfa spírur
Aðferð
Steikið dumplings, brokkólí og edamame baunir uppúr ólífuolíu.
Bætið út í sesamolíu, ólífuolíu, rauðu karríi og pressuðu hvítlauksrifi og hrærið. Saltið og piprið eftir smekk.
Skerið pak choi gróflega og smátt skerið vorlauk og kóríander.
Raðið salatinu á disk eða í skál. Því næst dreifið dumplings blöndunni yfir. Toppið svo með vorlauk, stöppuðum fetaosti, sesamfræjum, kóríander og radísuspírum.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti
Samstarf við Innnes



Comments