BYGG MEÐ GRÆNMETI, AVÓKADÓ & SRIRACHA SÓSU
- Jan 1
- 1 min read
Uppskrift að afar einföldum og bragðgóðum vegan rétti sem rífur vel í bragðlaukana. Tilvalinn hádegismatur. Bygg, brokkólí, kúrbítur, vorlaukur og jalapeno sem er toppað með avókadó, spírum, kóríander og sriracha sósu. Ég mæli með að sleppa jalapeno ef þið viljið ekki hafa þetta of sterkt. Sriracha sósan er alveg nóg. Annars er rétturinn líka góður án sósunnar.

Fyrir 1 1 dl bygg 1-2 dl brokkólí 1-2 dl kúrbítur 2-3 sveppir 1 vorlaukur ⅓ ferskt jalapeno (má sleppa) 2 sveppir Ólífuolía Salt og pipar 1/2 avókadó 1 msk kórander Alfalfa spírur Sriracha sósa (má sleppa)
Aðferð
Sjóðið byggið eftir leiðbeiningum. 1 dl á móti 2,5-3 dl af vatni. Sjóðið í 30-40 mínútur.
Skerið grænmetið smátt og steikið upp úr ólífuolíu.
Blandið bygginu saman við grænmetið og kryddið með salti og pipar.
Dreifið yfir í lokin smátt skornu avókadó, kóríander og alfalfa spírum ásamt Sriracha sósunni.

Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti



Comments