top of page
Search


GRILLAÐUR KÚRBÍTUR MEÐ MANGÓ SALSA
Afar gómsætur, sumarlegur og hollur grænmetisréttur sem ég gerði í samstarfi við Krónuna þar sem öll hráefnin í uppskriftinni fást. Grillaður fylltur kúrbítur með kínóa, ferskum maís, svörtum baunum, cheddar osti, mangósalsa og habanero sósu. Þessi réttur er ferskur en rífur líka aðeins í. Það er frábær hugmynd að bera hann fram með grilluðum tígrisrækjum ef að þið eruð í þannig stuði. Þennan rétt ætla ég að gera aftur, ekki spurning! Fyrir tvo 2 kúrbítar Ólífuolía Krónu kryd


GRÆN & GÓMSÆT PIZZA
Þessi pizza er svo ljúffeng að þið verðið eiginlega að prófa hana! Hún er með dásamlegri rjómaostasósu, edamame baunum, brokkólí, lauk, grænu pestói og ferskum mozzarella. Hún er svo góð að hún hreinlega leikur við bragðlaukana. Ég mæli með að skella í þessa pizzu um helgina og njóta með góðu rauðvínsglasi. Uppskrift að einni 12 tommu pizzu Pizzadeig (dugar í 2 þunnbotna 12 tommu pizzur) 1 dl volgt vatn 1 tsk ger 200 g fínt malað spelt 1 msk ólífuolía ½ tsk salt ½ kúrbítur 1


BYGG MEÐ GRÆNMETI, AVÓKADÓ & SRIRACHA SÓSU
Uppskrift að afar einföldum og bragðgóðum vegan rétti sem rífur vel í bragðlaukana. Tilvalinn hádegismatur. Bygg, brokkólí, kúrbítur, vorlaukur og jalapeno sem er toppað með avókadó, spírum, kóríander og sriracha sósu. Ég mæli með að sleppa jalapeno ef þið viljið ekki hafa þetta of sterkt. Sriracha sósan er alveg nóg. Annars er rétturinn líka góður án sósunnar. Fyrir 1 1 dl bygg 1-2 dl brokkólí 1-2 dl kúrbítur 2-3 sveppir 1 vorlaukur ⅓ ferskt jalapeno (má sleppa) 2 sveppir Ól


FYLLTUR KÚRBÍTUR
Kúrbítur fylltur með grænmeti, fetaosti, klettasalati og spicy mayo. Ljúffengur og einfaldur grænmetisréttur. Ég er alltaf að prófa mig áfram að gera grænmetisrétti og reyni að hafa slíkan rétt nokkrum sinnum í viku. Svo er hægt að skipta majónesinu út fyrir vegan majónesi og taka fetaostinn út og þá er hann orðinn vegan. Uppskrift fyrir 1 1 kúrbítur Ólífuolía 1-2 dl brokkólí 1-2 dl blómkál 2-4 sveppir Laukduft Túrmerik Cumin Salt og pipar Stappaður fetaostur Klettasalat Sósa
bottom of page