top of page

GRILLAÐUR KÚRBÍTUR MEÐ MANGÓ SALSA

  • Jan 1
  • 2 min read

Afar gómsætur, sumarlegur og hollur grænmetisréttur sem ég gerði í samstarfi við Krónuna þar sem öll hráefnin í uppskriftinni fást. Grillaður fylltur kúrbítur með kínóa, ferskum maís, svörtum baunum, cheddar osti, mangósalsa og habanero sósu. Þessi réttur er ferskur en rífur líka aðeins í. Það er frábær hugmynd að bera hann fram með grilluðum tígrisrækjum ef að þið eruð í þannig stuði. Þennan rétt ætla ég að gera aftur, ekki spurning!

Fyrir tvo 2 kúrbítar Ólífuolía Krónu krydd – Ertu ekki að grænast? eða aðra góða kryddblöndu Salt & pipar 1 ferskur maískólfur 1 ½ dl svartar baunir 1 ½ dl Quinola express spicy mexican 1 dl rifinn cheddar ostur

Mangósalsa 1 avókadó ½ mangó 8 litlir tómatar 1 msk blaðlaukur 1 msk kóríander Safi úr ½ lime

Sósa 3 msk majónes 3 msk sýrður rjómi 1-2 tsk Habanero sósa frá Sauce shop Safi úr ½ lime ¼ tsk hvítlauksduft ¼ tsk laukduft Salt og pipar

Aðferð

  1. Byrjið á því að skera tómata, mangó, avókadó og blaðlauk smátt og blanda saman við safa úr lime.

  2. Skerið maískornin af maískólfinum. Steikið upp úr olíu á pönnu í 3-5 mínútur og saltið og piprið. Blandið maískornunum saman við svartar baunir, kínóa og cheddar ost.

  3. Hrærið öllum sósu hráefnunum saman í skál. Mæli með að smakka ykkur til með habanero sósuna, hún er mjög sterk.

  4. Skerið kúrbít í tvennt og hreinsið innan úr honum með skeið. Penslið með ólífuolíu og kryddið með Ertu ekki að grænast, salti og pipar.

  5. Grillið kúrbítinn í 4-6 mínútur á báðum hliðum eða þar til hann er kominn með góðar grillrendur.

  6. Fyllið hann með kínóablöndunni og haldið áfram að grilla hann á vægum hita í 10-12 mínútur eða þar til hann er eldaður í gegn og osturinn bráðnaður. Þið getið einnig bakað hann í ofni við 200°C í 12-15 mínútur.

  7. Toppið kúrbítinn með mangósalsanu og sósunni.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti


Samstarf við Krónuna

Comments


bottom of page