top of page

FYLLT EGGALDIN MEÐ FETAOSTI OG GRANATEPLI

  • Jan 1
  • 1 min read

Hér kemur uppskrift af mjög góðum grænmetisrétti sem tekur enga stund að elda. Fyllt eggaldin með kínóa, brokkólí, sveppum, skarlottulauk og toppað með avókadó, fetaosti og granatepli. Þessi réttur er mjög bragðgóður og mér finnst alls ekki þurfa sósu með honum. Svo er lítið mál að sleppa bara fetaostinum og þá er hann orðinn vegan.

Fyrir 1-2 1 eggaldin 2 dl kínóa, eldað Brokkólí 2 sveppir 1 skarlottulaukur Salt og pipar Chili explosion Ólífuolía, ég nota frá Olifa ½ avókadó, skorið smátt Stappaður fetakubbur, eftir smekk Granatepli, eftir smekk

Aðferð

  1. Skerið eggaldin til helminga og takið aðeins úr því með skeið.

  2. Leggið eggaldin á bökunarpappír eða í eldfast mót og dreifið ólífuolíu yfir opna hlutann og saltið og piprið.

  3. Bakið í ca. 20 mínútur við 180°C.

  4. Skerið sveppi, brokkólí og skarlottulauk smátt og steikið á pönnu upp úr olíu.

  5. Blandið kínóa út í og kryddið.

  6. Fyllið eggaldin með kínóablöndunni.

  7. Toppið svo með avókadó, fetaosti og granatepli eftir smekk.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti

Comments


bottom of page