TORTILLU KAKA MEÐ GRASKERI
- Jan 1
- 2 min read
Súper góður og einfaldur grænmetisréttur. Tortillum er staflað upp í köku og fylltar með ýmsu góðgæti eins og butternut squash, sveppum, lauk, Philadelphia rjómaosti og cheddar osti. Þetta er svo borið fram með guacamole með fetaosti. Grasker er gott með svo mörgu, sérstaklega með þessum dásamlega góðu tortillum. Rjómaosturinn og cheddar gera réttinn svo einstaklega djúsí og góðan.

5 tortillur með grillrönd frá Mission 1 butternut squash 2 msk ólífuolía ½ tsk chiliduft 1 tsk cumin 1 tsk salt ¼ tsk pipar Smjör 250 g sveppir, skornir í smáa báta 1 laukur, smátt skorinn 2-3 hvítlauksrif, pressuð 1 rjómaostur frá Philadelphia Cheddar ostur, rifinn 100 g spínat 1-2 msk sýrður rjómi Kóríander
Guacamole með fetaosti 3 stór avókadó eða 5 lítil 1 ½ dl stappaður fetakubbur Safi úr 1 lime Chiliflögur eða duft
Salt & pipar
Aðferð
Afhýðið butternut squash, fjarlægið fræin úr miðjunni með skeið og skerið það í litla bita.
Hellið butternut squash bitunum í skál og blandið saman við ólífuolíu, chiliduft, cumin, salt og pipar.
Dreifið bitunum á bökunarplötu þakta bökunarpappír og bakið í 20 mínútur við 190°C.
Steikið sveppi og lauk upp úr smjöri. Kryddið með salti og pipar og blandið hvítlauknum saman við í lokin.
Smyrjið tortillu með rjómaosti, dreifið ¼ af sveppablöndunn og ¼ af butternut squash og dreifið svo spínatinu og cheddar ostinum yfir. Staflið annarri tortillu ofan á og endurtakið þetta þrisvar sinnum í viðbót.
Smyrjið toppinn á tortillakökunni með sýrðum rjóma og stráið restinni af cheddar ostinum yfir.
Bakið í ofni í 6-8 mínútur eða þar til osturinn er bráðnaður.
Skerið í sneiðar og berið fram með guacamole og kóríander.
Guacamole með fetaosti
Blandið öllu saman með töfrasprota eða stappið öllu saman.




Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti
Samstarf við Innnes















Comments