top of page

BUTTERNUT SQUASH TACO

  • Jan 1
  • 2 min read

Butternut squash er tegund af graskeri sem gott er að nota í allskyns rétti. Það er stútfullt af vítamínum og geymsluþolið er gott. Graskerið er mjög ljúffengt og passar vel í marga rétti. Þessi uppskrift er einföld og ómótstæðilega góð. Linsubaunirnar passa mjög vel með graskerinu en svo er líka gott að setja svartar baunir eða pinto baunir í staðinn. Einnig er auðvelt að gera réttinn alveg vegan og setja vegan majónes í staðinn fyrir venjulegt.


Fyrir 2-3

Litlar tortillur, soft taco

Butternut squash, grasker

Ólífuolía

Cumin

Cayenne pipar

Kóríander duft

Lauk duft

Salt og pipar

1 dl rauðar linsubaunir

2 Avókadó

Safi úr lime

Ferskur kóríander, smátt skorinn (má sleppa)

Tilbúin salatblanda í poka (blanda af káli, hvítkáli, gultótum og rauðkáli)

4 msk majónes

1-2 tsk sambal oelek


Aðferð

  1. Skerið hýðið af graskerinu og skerið það í litla bita.

  2. Setjið graskerið í eldfast mót og dreifið ólífuolíu yfir. Kryddið með cumin, cayenne pipar, kóríander dufti, salti, pipar og hrærið saman.

  3. Bakið við 190°C í 25-30 mínútur eða þar til graskerið er orðið mjúkt. Hrærið 1-2 sinnum í því á meðan það er að bakast.

  4. Sjóðið linsubaunirnar á meðan graskerið er að bakast. Sjóðið þær í 2,5 dl vatni í 15-20 mínútur. Saltið og piprið.

  5. Hrærið majónesi og sambal oelek saman og blandið saman við salatblönduna.

  6. Stappið avókadó. Kreistið yfir það smá safa úr lime og saltið.

  7. Steikið tortillurnar uppúr ólífuolíu þar til þær verða stökkar. Passið að brenna þær ekki. Brjótið þær saman á pönnunni á meðan þær eru ennþá mjúkar.

  8. Fyllið tortillurnar með hrásalatinu, linsubaununum, avókadó og graskerinu. Toppið svo með ferskum kóríander.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti

Comments


bottom of page