TAQUITOS MEÐ KJÚKLINGI & GUACAMOLE
- Jan 1
- 2 min read
Stökkt taquitos með mjúkri kjúklinga- og ostafyllingu borið fram með guacamole og kóríander sósu. Nammii, þetta er alltof gott! Ef að þið viljið gera uppskriftina ennþá fljótlegri þá er sniðugt að kaupa tilbúna kryddblöndu í staðinn fyrir kryddin á kjúklinginn og skipta kóríander sósunni út fyrir sýrðan rjóma.

Uppskrift fyrir 4-5 500-600 g úrbeinuð kjúklingalæri ½ tsk cumin ½ tsk salt ½ tsk hvítlauksduft ½ tsk laukduft ½ tsk paprikuduft ¼ tsk pipar ¼ tsk cayenne pipar 2 msk Caj P. kryddlögur ½ dl bjór, ég notaði Corona ⅔ hreinn Philadelphia rjómaostur 3 msk salsasósa frá Mission 2 msk sýrður rjómi 1 dl rifinn cheddar ostur 18- 20 Litlar tortillur
Ólífuolía til steikingar
Guacamole 2 avókadó 2 tómatar 2 msk rauðlaukur Safi úr ½ lime Cayenne pipar Salt & pipar
Kóríander sósa 2 msk sýrður rjómi 2 msk Heinz majónes Safi úr ½ lime 2-3 msk ferskur kóríander, smátt skorinn Salt & pipar
Aðferð
Byrjið á því að blanda kjúklingnum saman við kryddlöginn, bjórinn og kryddið. Hrærið öllu vel saman og bakið í ofni við 200°C í 30 mínútur.
Blandið saman í sósuna og guacamole á meðan kjúklingurinn bakast.
Rífið kjúklinginn smátt, ég notaði tvo gaffla í verkið.
Blandið rjómaosti, salsasósu, sýrðum rjóma og cheddar osti saman við kjúklinginn.
Dreifið 2-3 msk af kjúklingablöndunni á tortillurnar og rúllið þeim upp.
Hellið ólífuolíu í pönnu þannig að hún þekur vel botninn á pönnunni og hitið vel.
Steikið tortillurnar þar til þær verða stökkar og gylltar. Tekur mjög stutta stund.
Berið fram með guacamole og kóríander sósu og njótið vel.
Guacamole
Blandið saman avókadó, safa úr lime og kryddi með töfrasprota, matvinnsluvél eða stappið.
Smátt skerið tómata og rauðlauk og blandið saman við avókadóið í skál.
Kóríander sósa
Hrærið öllum hráefnunum saman í skál.




Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti
Samstarf við Innnes













Comments