top of page

EXTRA STÖKKT TACO MEÐ KJÚKLINGABAUNUM

  • Jan 2
  • 1 min read

Tacos með stökkum kjúklingabaunum, heimagerðu tómatsalsa, cheddar osti, salati, guacamole og fetaosti. Algjört nammi! Það er eitthvað svo ótrúlega gott að setja harðar tacoskeljar inn í mjúkar tortillur með sýrðum rjóma og ost á milli. Mæli með að útbúa ofnbakað heimagert tómatsalsa sem tekur enga stund að útbúa og alveg þess virði. Ég notaði Biona kjúklingabaunir sem eru lífrænt ræktaðar og mjög góðar.

Fyrir fjóra

1 Biona organic chickpeas Krydd: ¼ tsk reykt paprika, ¼ tsk chili, ¼ tsk pipar, ¼ tsk hvítlauksduft, ¼ tsk laukduft, ½ tsk cumin, ½ tsk salt 1-2 msk ólfíuolía Litlar mjúkar tortillur Litlar harðar taco skeljar Sýrður rjómi Rifinn cheddar ostur

Tómatsalsa 4 tómatar 1/2 rauðlaukur 1 msk ólífuolía Salt & pipar eftir smekk 1/2 tsk hvítlauksduft

Ferskt guacamole Salat, ég notaði romain Fetaostur Kóríander

Aðferð

  1. Blandið saman kjúklingabaunum, kryddi og ólífuolíu. Dreifið á bökunarplötu þaktri bökunarpappír og bakið í 12-15 mínútur við 180°C.

  2. Smátt skerið tómata og rauðlauk. Blandið saman við ólífuolíu, salt, pipar og hvítlauksduft. Dreifið í lítið eldfast form og bakið í 20 mínútur. Takið úr ofninum hrærið vel saman.

  3. Smyrjið mjúku tortillurnar með sýrðum rjóma og dreyfið rifnum cheddar osti eftir smekk. Leggjið hörðu taco skeljarnar í miðjuna á tortillunni og bakið í 7-8 mínútur við 180°C eða þar til osturinn er bráðnaður.

  4. Þrýstið tortillunum utan um taco skeljarnar á meðan osturinn er ennþá heitur.

  5. Skerið romain salatið í strimla.

  6. Dreifið guacamole, salati, tómatsalsa, kjúklingabaununum, fetaosti og kóríander í taco skeljarnar eftir smekk. Njótið vel.






Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti


Samstarf við Heilsu

Comments


bottom of page