top of page

OFNBAKAÐ TACOS MEÐ LINSUBAUNUM

  • Jan 1
  • 1 min read

Updated: 7 days ago

Ég elska einfaldar, ljúffengar og hollar uppskriftir og hér kemur taco uppskrift sem tikkar í öll boxin. Taco með tilbúnum linsubaunum frá Oddpods sem ég útbjó í samstarfi við Danól. Ég notaði brúnu linsubaunirnar í tacoið ásamt nóg af osti, salsa sósu, spínati, blaðlauk, grænu chili og bar fram með dásamlegri sósu, avókadó og kokteiltómötum. 

Fyrir tvo 1 poki Brown lentils frá Oddpods (linsubaunir) 1 dl Salsa sósa6 litlar tortillur Ólífuolía Spínat Blaðlaukur, smátt skorinn Grænt chili, smátt skorið (má sleppa) Rifinn cheddar ostur Rifinn gouda ostur (eða mozzarella)

Kóríander ranch sósa 2 dl grísk jógúrt 1 tsk salt 1 tsk laukduft 1 tsk hvítlauksduft 2 msk kóríander, smátt saxað (einnig gott að nota steinselju) 1 lime

Meðlæti Avókadó Kokteiltómatar

Aðferð

  1. Blandið saman linsubaunum og salsa sósu í skál.

  2. Penslið tortillurnar og brjótið þær saman í tvennt.

  3. Fyllið tortillurnar með spínati, 1-2 msk af linsubaunum, 1-2 tsk af blaðlauki, chili eftir smekk(má sleppa) og stráið 2-3 msk rifnum cheddar osti og rifnum gouda osti yfir.

  4. Lokið tortillunum og stráið cheddar- og gouda osti á toppinn.

  5. Bakið tortillurnar í 10 mínútur eða þar til þær eru orðnar stökkar og gylltar.

  6. Blandið öllum hráefnunum í sósuna saman í skál og skerið avókadó og tómata smátt.

  7. Berið tortillurnar fram með sósunni, avókadó og kokteiltómötum. Njótið vel!


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti

Comments


bottom of page