top of page

FISKITACOS MEÐ LIMESÓSU

  • Jan 1
  • 2 min read

Bragðgott fiskitacos með þorskhnakka, Philadelphia rjómaosti, hvítkáli, rauðkáli, tómat-og avókadó salsa ásamt dásamlegri limesósu. Ég hef gert þennan rétt svo ótal mörgum sinnum og hann er alltaf jafn góður! Uppskriftin er einföld og mjög bragðgóð en þið getið í rauninni notað hvaða fisk sem er. Það er einnig mjög gott að nota t.d. bleikju eða löngu.

Fyrir 3-4, ég mæli með 3 litlum tortillum

500 g þorskhnakki

1 egg

1 dl spelt

1 tsk taco explosion

1 tsk cumin

1 tsk cayenne pipar (má sleppa)

1 1/2 tsk salt

1 tsk pipar

1-2 msk smjör til steikingar

1 lime

Tortillur

Ólífuolía til steikingar

Philadelphia rjómaostur


1/4-1/2 hvítkál

1/4-1/2 ferskt rauðkál

Tabasco sósa eftir smekk Ferskt kóríander eftir smekk

Salsa 2 tómatar 2-3 msk rauðlaukur 2 msk kóríander 2 avókadó Safi úr 1/2 lime Salt og pipar

Limesósa 1 dl Heinz majónes 1 dl sýrður rjómi Safi úr 1-2 lime 1/2 tsk limebörkur Salt og pipar

Aðferð

  1. Skerið hvítkál og rauðkál í ræmur, hrærið og setjið í skál.

  2. Pískið egg í skál. Hrærið saman speltinu og kryddinu á disk. Skerið þorskinn í bita, veltið þeim upp úr egginu og síðan speltblöndunni.

  3. Steikið fiskinn á pönnu upp úr smjöri. Skerið eitt lime í báta og dreifið þá yfir fiskinn þegar eldunin er hálfnuð.

  4. Steikið tortillurnar upp úr smá olífuolíu þangað til að þær verða gylltar.

  5. Smyrjið rjómaosti á tortillurnar, dreifið kálinu, tómatsalsanu og fiskinum yfir.

  6. Toppið tacoið með limesósu og kóríander. Fyrir þá sem vilja hafa þetta örlítið sterkara þá er gott að bera þetta fram með tabasco sósu.

Salsa

  1. Skerið tómata (hreinsið fræin úr), rauðlauk og avókadó í litla bita og hrærið saman við kóríander og safa úr lime. Saltið & piprið eftir smekk.

Limesósa

  1. Hrærið saman majónesi og sýrðum rjóma ásamt rifnum lime berki, lime safa, salti og pipar.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti

Comments


bottom of page