TACO MEÐ HUMRI & BEIKONI
- Jan 1
- 1 min read
Taco með humri, beikoni, rauðkáli, Philadelphia rjómaosti, tómötum, hvítlauks-og steinseljusósu og toppað með granateplafræum. Svo bragðgóð og einföld uppkrift.

Uppskrift að 6-8 tacos 330 g skelflettur humar frá Sælkerafiski (1 pakkning) 1 msk ólífuolía 4 msk steinselja, smátt söxuð 1 hvítlauksrif, pressað eða rifið Salt & pipar Chili flögur 1 msk smjör 8-10 beikonsneiðar 6-8 litlar tortillur Philadelphia rjómaostur eftir smekk 4-6 kokteiltómatar, smátt skornir 4-5 dl rauðkál Granatepli eftir smekk
Sósa
4 msk Heinz majónes
2 msk sýrður rjómi
½ hvítlauksrif, pressað eða rifið
3 msk steinselja, smátt skorin
Safi úr ½ sítrónu
Salt & pipar
Aðferð
Blandið saman í skál humri, ólífuolíu, steinselju, hvítlauk, chili flögum, salti og pipar. Leyfið þessu að liggja saman á meðan þið undirbúið meðlætið.
Skerið rauðkál og tómata smátt og fjarlægið fræin úr granateplinu.
Útbúið sósuna. Hærið saman í skál majónesi, sýrðum rjóma, hvítlauk, steinselju, sítrónusafa, salti og pipar.
Leggið beikonið á bökunarplötu þakta bökunarpappír og bakið í 10-12 mínútur við 200°C eða þar til það er orðinn vel stökkt. Skerið beikonið smátt.
Steikið humarinn uppúr smjöri. Það tekur aðeins örfáar mínútur fyrir humarinn að eldast.
Steikið tortillurnar upp úr smá olíu þar til þær verða örlítið stökkar. Tekur litla stund. Þið getið líka bakað þær í ofni en þá er gott að bera smá ólífuolíu á þær.
Smyrjið þær með rjómaosti eftir smekk. Því næst raðið þið rauðkáli í botninn, tómötum, humri, beikoni, sósunni og dreifið granateplafræjunum yfir. Njótið!



Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti
Samstarf við Innnes















Comments