top of page

BLÓMKÁLS TACO MEÐ BBQ SÓSU & HRÁSALATI

  • Jan 1
  • 1 min read

Taco með ofnbökuðu blómkáli í bbq sósu, spæsí hrásalati og avókadó. Hrásalatið inniheldur hvítkál, jalapeno og Heinz majónes og það á mjög vel við bbq sósuna og avókadóið. Skotheld og djúsí blanda! Mæli með að stilla af magnið af jalapeno eftir því hvað þið viljið hafa þetta sterkt. Það er líka mjög gott að setja kjúkling í staðinn fyrir blómkálið ef að þið eruð í stuði fyrir það.

Uppskrift fyrir 3-4 Litlar tortillur (Mæli með þremur taco á mann) Ólífuolía 400-500 g blómkál 1½ dl Heinz Sweet Barbeque sósa ½ tsk laukduft ½ tsk hvítlauksduft½ tsk saltflögur¼ tsk pipar

Hrásalat 300-400 g hvítkál 6 msk Heinz majónes 2-3 msk jalapeno

Avókadóstappa 2-3 avókadó ½ lime Salt & pipar

Ferskur kóríander eftir smekk, smátt skorinn

Aðferð

  1. Byrjið á því að skera blómkálið smátt. Skolið það og þurrkið vel.

  2. Blandið bbq sósunni vel saman við og kryddið.

  3. Dreifið í eldfast mót og bakið í kringum 15 mínútur við 190°C.

  4. Blandið saman majónesi og jalapeno með töfrasprota. Einnig gott að smátt saxa jalapeno og blanda því saman við majónesið með skeið.

  5. Skerið hvítkálið smátt og hrærið saman við jalapeno majó.

  6. Stappið avókadó og blandið saman við safa úr lime, salt og pipar.

  7. Steikið tortillurnar uppúr ólífuolíu þar til þær verða gylltar og smá stökkar.

  8. Dreifið hrásalatinu á tortillurnar, því næst blómkálinu og að lokum avókadóinu. Stráið kóríander yfir og njótið.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti

Comments


bottom of page