SESARSALAT MEÐ AVÓKADÓSÓSU
- Jan 1
- 1 min read
Mánudagur og þá er tilvalið að skella í gott kjúklingasalat. Þetta sesarsalat er svo gott, ætti ekki að svíkja neinn því það er bæði ljúffengt og auðvelt að útbúa og svo er hvítlauks- og avókadósósan guðdómlega góð!

Fyrir 2-3 500-600 g kjúklingalundir Ítölsk hvítlauksblanda (frá Pottagöldrum) Salt og pipar Romain salat Klettasalat Kokteiltómatar Agúrka Rauðlaukur1-2 avókadó 6-8 beikon sneiðar Parmesan ostur
Hvítlaukssósa 1 avókadó 4 msk grísk jógúrt Safi úr 1/2 sítrónu 1-2 hvítlauksrif 1-2 msk ólífuolía
Aðferð
Kryddið kjúklinginn og bakið í ca. 20 mínútur við 200°C eða steikið þar til kjúklingurinn er fulleldaður. Einnig er gott að grilla hann.
Leggið beikon á ofnplötu og bakið í 10 mínútur við 200°C eða þar til það er orðið stökkt.
Skerið allt grænmetið eftir smekk og setjið í skál. Skerið avókadó í sneiðar, raspið parmesanostinn og bætið því við.
Skerið kjúklinginn og beikonið og hrærið saman við grænmetið. Hellið svo sósunni yfir og blandið saman.
Hvítlaukssósa
Blandið öllu hráefninu vel saman með töfrasprota eða í matvinnsluvél.

Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti



Comments