RISARÆKJUSALAT MEÐ MANGÓ & SPÆSÍ MAJÓ
- Jan 1
- 1 min read
Girnilegt, ferskt og gott risarækjusalat með avókadó, kokteiltómötum, mangó, nachos flögum, kóríander og spæsí mæjó. Mér finnst þetta salat svo létt, gott og sumarlegt. Risarækjur passa sérlega vel með mangó og avókadó. Mæli mikið með að þið prófið þetta!
300 g Sælkerafiskur tígrisrækjur (1 pakkning) 2 msk Caj P kryddlögur 1-2 hvítlauksrif, pressuð Salt og pipar Salatblanda eftir smekk 1-2 avókadó 10 kokteiltómatar 1 mangó Nachos flögur eftir smekk Ferskt kóríander eftir smekk Filippo Berio ólífuolía
Spæsí mæjó 3 msk Heinz majónes 3 msk sýrður rjómi Salt og pipar Safi úr ½ sítrónu eða límónu 2 msk Tabasco Sriracha sósa
Aðferð
Blandið rækjunum saman við Caj P kryddlögin, pressuð hvítlauksrifin, salt og pipar.
Steikið rækjurnar upp úr ólífuolíu þar til þær verða bleikar og eldaðar í gegn, það tekur nokkrar mínútur.
Skerið avókadó, kokteiltómata og mangó í smáa bita.
Útbúið sósuna, hrærið öllum hráefnunum saman í skál.
Setjið salatblönduna í botninn á skál og bætið því næst avókadó, kokteiltómötum og mangó saman við.
Myljið nachosflögur og stráið yfir. Dreifið að lokum rækjunum, sósunni og kóríander yfir.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti



Comments