EINFALT LINGUINE MEÐ RISARÆKJUM
- Jan 1
- 1 min read
Þessi réttur klikkar ekki og verður oft fyrir valinu á mínu heimili þar sem hann er í miklu uppáhaldi. Uppskriftin er afar einföld og fljótleg. Risarækjur í hvítlauk, chili og parmesan blandað saman við linguine. Þessi blanda passar sérlega vel saman. Ég á mjög oft risarækjur í frystinum sem ég get gripið í og nota þær í alls kyns rétti. Það passar þó líka vel að nota annað pasta eða spaghetti í stað linguine.

Fyrir 2 400-500 g risarækjur 250 g linguine 1 stór chili 2 hvítlauksgeirar 3 skarlottulaukar 2-3 msk ólífuolía Salt og pipar Cayenne pipar Fersk steinselja Parmesan ostur
Aðferð
Skerið chili og skarlottulauk smátt.
Blandið risarækjum, krömdum hvítlauk, chili, salti, pipar, smá cayenne pipar og olíu í skál.
Sjóðið linguine eftir leiðbeiningum á pakkningu.
Steikið skarlottulauk á pönnu við vægan hita og bætið svo risarækjunum í chili- og hvítlauksolíunni við. Bætið ólífuolíu við ef ykkur finnst vanta.
Hrærið tilbúnu linguine við rækjurnar. Dreifið svo að lokum rifnum parmesan osti og steinselju yfir.

Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti



Comments