top of page
Search


GRILLUÐ BLEIKJA MEÐ CAPERS SMJÖRI, STEINSELJU & SÍTRÓNU
Þessi grillaða bleikja er einn af þessum réttum sem ég geri aftur og aftur. Smjör, capers, hvítlaukur og sítróna gefa fiskinum ótrúlega gott bragð og með grilluðum kartöflum og kaldri sósu verður þetta einföld en dásamleg máltíð. 700 g bleikjuflök frá Fiskverzlun Hafliða 70 g mjúkt smjör 2 msk capers frá Gestus 2 hvítlauksrif, pressuð 3 msk fersk steinselja, smátt söxuð ½ tsk flögusalt ¼ tsk nýmalaður svartur pipar Sítróna, skorin í þunnar sneiðar Kartöflur 600–700 g kartöfl


HARISSA KJÚKLINGUR & HRÍSGRJÓN Á EINNI PÖNNU
Einstaklega ljúffengur og þægilegur mið-austurlenskur réttur þar sem kjúklingur og hrísgrjón eru elduð á sömu pönnu og sett inn í ofn. Ég fann þessa uppskrift í Olive Magazine og varð strax að prófa og hún klikkaði ekki. Gott að bera fram með kaldri jógúrtsósu og fersku salati. Fyrir 3-4 2½ msk ólífuolía 6 kjúklingalæri Salt, pipar, harissa krydd og hvítlauksduft eftir smekk 1 stór rauðlaukur(eða tveir litlir), þunnt skorinn 2 hvítlauksrif, pressuð 1½ msk harissa krydd 1 tsk


RJÓMALAGAÐ PASTA MEÐ SÓLÞURRKUÐUM TÓMÖTUM
Þessi réttur er einfaldur og dásamlega góður, fullkominn í haust þegar manni langar í eitthvað djúsí og gott. Rjómalagað pasta með sólþurrkuðum tómötum, sveppum og kjúklingi. Rétturinn er einnig ljúffengur án kjúklings, ef þú vilt léttari útgáfu. Passar fullkomlega með rauðvínsglasi og fersku salati. Fyrir 3-4 300-400 g De Cecco penne rigate pasta 3 bringur Kjúklingur + 1 tsk salt + 1/4 tsk pipar Ólífuolía 1 Laukur 3-4 hvítlauksrif 200 g Sveppir 1 dl sólþurrkaðir tómatar 250


RJÓMALAGAÐ FUSILLI MEÐ SVEPPUM
Einfalt er oft best. Þessi uppskrift er dásamleg fyrir alla sveppaunnendur og er fullkominn réttur fyrir jólaannríkið. Hún er einföld, fljótleg og ótrúlega ljúffeng – passar bæði á virkum dögum og þegar þú vilt gleðja fjölskyldu eða gesti í desember. Það er einnig gott að bæta smávegis af rifnum sítrónubörk fyrir ferskleika eða smá chiliflögum fyrir kryddaðri útgáfu. Mæli með að bera fram með góðu hvítvínsglasi og njóta vel í aðventunni. 250 g De Cecco Fusilli pasta 2 msk ó


RISOTTO MEÐ SVEPPUM OG SPÍNATI
Risotto er einn af mínum uppáhaldsréttum og ég geri það oft á mínu heimili. Það tekur eilítinn tíma að útbúa risotto, þarf að standa yfir pottunum og hræra í svona 30-40 mínútur. Það er samt tvímælalaust þess virði og útkoman er dásamlega ljúffeng! Mér finnst mjög notalegt að gera risotto en ég mæli með að hafa góðan félagsskap og jafnvel eitt hvítvínsglas við hönd. Fyrir 3-4 3 dl arborio hrísgrjón 9-10 dl grænmetissoð (vatn og grænmetisteningur) Smjör 1 dl hvítvín 3-4 skarlo


EINFALT LINGUINE MEÐ RISARÆKJUM
Þessi réttur klikkar ekki og verður oft fyrir valinu á mínu heimili þar sem hann er í miklu uppáhaldi. Uppskriftin er afar einföld og fljótleg. Risarækjur í hvítlauk, chili og parmesan blandað saman við linguine. Þessi blanda passar sérlega vel saman. Ég á mjög oft risarækjur í frystinum sem ég get gripið í og nota þær í alls kyns rétti. Það passar þó líka vel að nota annað pasta eða spaghetti í stað linguine. Fyrir 2 400-500 g risarækjur 250 g linguine 1 stór chili 2 hvítla


TORTELLINI MEÐ BEIKONI, SVEPPUM OG FERSKUM ASPAS
Mér finnst ferskt tortellini svo ljúffengt, klikkar aldrei og mikill „comfort“ matur sem er djúsí og góður. Mér finnst tortellini falla algjörlega undir þann flokk. Hér kemur ein tortellini uppskrift sem inniheldur beikon, sveppi, ferskan aspas og dásamlega góða parmesan-og sítrónusósu. Fljótlegt og gott! Fyrir 3-4 500 g ferkst tortellini með ricotta og spínati Nokkrar vel stökkar beikonsneiðar (ofnbakaðar) 4 sveppir (miðstærð) 10 ferskir aspas stilkar 1 stórt rifið hvítlauks


GRASKERS- OG SPÍNATLASAGNA
Þetta ofur ljúffenga graskers- og spínatlasagna slær alltaf rækilega í gegn þegar ég elda það! Börnin mín sem eru 8 ára og 20 mánaða elska það! Grasker og spínat passa sérlega vel saman með nóg af osti og lasagne plötum. Ég er búin að vera að prófa mig áfram með að elda úr butternut squash. Það er sætt á bragðið og minnir eilítið á sæta kartöflu. Einnig er það mjög næringarríkt og inniheldur mikið af góðum trefjum og A-vítamíni. Mér finnst ákaflega sniðugt að kaupa tvö graske
bottom of page