top of page

TORTELLINI MEÐ BEIKONI, SVEPPUM OG FERSKUM ASPAS

  • Jan 1
  • 1 min read

Mér finnst ferskt tortellini svo ljúffengt, klikkar aldrei og mikill „comfort“ matur sem er djúsí og góður. Mér finnst tortellini falla algjörlega undir þann flokk. Hér kemur ein tortellini uppskrift sem inniheldur beikon, sveppi, ferskan aspas og dásamlega góða parmesan-og sítrónusósu. Fljótlegt og gott!

Fyrir 3-4

500 g ferkst tortellini með ricotta og spínati

Nokkrar vel stökkar beikonsneiðar (ofnbakaðar)

4 sveppir (miðstærð)

10 ferskir aspas stilkar

1 stórt rifið hvítlauksrif

Salt og pipar

Smá kjötkraftur

Ólífuolía

1/2 – 1 dl rjómi

1-2 dl rifinn parmesan ostur

½ sítróna

Fersk steinselja

Aðferð

  1. Skerið sveppi og aspas í bita. En brjótið fyrst nokkra cm neðan af aspasnum (þar sem hann er oftast trénaður) og hendið því.

  2. Sjóðið tortellini eftir leiðbeiningum.

  3. Steikið sveppi og aspas upp úr ólífuolíu. Bætið hvítlauknum við.

  4. Hellið rjóma og safa úr ca. ½ sítrónu út í. Saltið, piprið og setjið smá kjötkraft. Dreifið parmesan osti og beikoni yfir og hrærið vel. Smakkið ykkur endilega til.

  5. Bætið við í lokin tortellini og skreytið með parmesan og ferskri steinselju.

Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti

Comments


bottom of page