HARISSA KJÚKLINGUR & HRÍSGRJÓN Á EINNI PÖNNU
- Mar 19
- 2 min read
Einstaklega ljúffengur og þægilegur mið-austurlenskur réttur þar sem kjúklingur og hrísgrjón eru elduð á sömu pönnu og sett inn í ofn. Ég fann þessa uppskrift í Olive Magazine og varð strax að prófa og hún klikkaði ekki. Gott að bera fram með kaldri jógúrtsósu og fersku salati.

Fyrir 3-4
2½ msk ólífuolía
6 kjúklingalæri
Salt, pipar, harissa krydd og hvítlauksduft eftir smekk
1 stór rauðlaukur(eða tveir litlir), þunnt skorinn
2 hvítlauksrif, pressuð
1½ msk harissa krydd
1 tsk cumin
1 tsk kanilstöng
Salt og pipar
300 g basmati hrísgrjón, skoluð
600 ml kjúklingasoð
10 g fersk steinselja, smátt skorin
1 sítróna, rifinn börkur og safi
1 tsk sumac
Aðferð
Hitið ofninn í 200°C (180°C blástur). Kryddið kjúklinginn vel með salti, pipar, harissa og hvítlauksdufti.
Hitið 1 msk af olíu á pönnu sem má fara í ofn. Steikið kjúklinginn á meðalhita í 6–8 mínútur þar til hann er fallega gylltur. Takið hann af pönnunni og leggið til hliðar.
Setjið restina af olíunni á pönnuna. Bætið 1/2 rauðlauk steikið í um 10 mínútur á vægum hita þar til hann er orðinn mjúkur
Bætið hvítlauki, harissa kryddi, cumin og kanilstöng út í og steikið í smá stund. Hrærið svo hrísgrjónunum saman við. Saltið og piprið eftir smekk.
Hellið kjúklingasoðinu út á og leggið kjúklinginn ofan á. Setjið lok á og bakið í ofni í 35 mínútur þar til hrísgrjónin eru mjúk og kjúklingurinn eldaður í gegn.
Blandið saman 1/2 rauðlauk, steinselju, sítrónuberki, sítrónusafa, sumac og 1 msk ólífuolía.
Takið pottinn úr ofninum og setjið fersku rauðlauksblönduna yfir réttinn áður en þið berið fram.
Gott að bera fram með fersku salati og kaldri grískri jógúrtsósu.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti















Comments