EINFALDIR KJÚKLINGALEGGIR
- Feb 8
- 2 min read
Kjúklingaleggir með kartöflubátum og Heinz Saucy Sauce er tilvalinn réttur fyrir annasama virka daga. Fljótlegt að útbúa, þar sem allt fer í eitt fat og inn í ofninn – minni vinna og minni uppvask! Krakkarnir elska þennan bragðgóða rétt, og svo er hann bæði hagkvæmur og hentar fyrir alla fjölskylduna. Fullkomið þegar þú vilt einfaldan kvöldmat.

8 kjúklingaleggir 6 kartöflur 2 msk ólífuolía
Krydd á kjúkling: 1 msk ólífuolía 1 tsk salt 1 tsk lauk- og hvítlauksduft 1 tsk paprikukrydd 1 tsk oregano 1/4 tsk pipar
Krydd á kartöflur: 1 msk ólífuolía 1 tsk salt 1 tsk laukduft 1 tsk hvítlauksduft 1/4 tsk pipar
Bera fram með: Heinz Saucy Sauce
Aðferð
Stillið ofninn á 200°C (180°C ef blástursofn) og leyfið honum að hitna.
Undirbúið hráefnin: Flysjið og skerið kartöflurnar í báta. Setjið kartöflubátana í skál og blandið þeim saman við 1 msk af ólífuolíu, salt, laukduft, hvítlauksduft og pipar. Blandið vel saman þannig að kartöflurnar séu þaktar kryddi og olíu.
Setjið kjúklingaleggina í aðra skál og blandið þeim saman við 1 msk af ólífuolíu. Stráið kryddblöndunni yfir kjúklingaleggina (salt, lauk- og hvítlauksduft, paprikukrydd, oregano og pipar) og nuddið kryddinu vel inn í kjúklinginn.
Raðið kartöflubátunum og kjúklingaleggjunum í stóra eldfasta ofnskúffu eða fat þannig að allt passi vel.
Setjið fatið í ofninn og bakið í um 40 mínútur eða þar til kjúklingurinn er eldaður í gegn og kartöflurnar eru mjúkar og gullinbrúnar. Snúið kjúklingnum einu sinni eftir um 20 mínútur til að ná jöfnum lit.
Takið fatið úr ofninum og berið kjúklingaleggina og kartöflubátana fram með Heinz Saucy Sauce og njótið vel!



Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti
Samstarf við Innnes









Comments