top of page

SPAGHETTI CARBONARA

  • Jan 2
  • 1 min read

Hvernig væri að skella í dýrindis spaghetti carbonara sem tekur enga stund að útbúa og er dásamlega gott? Þessi uppskrift inniheldur fá en góð hráefni. Klassískur réttur sem klikkar ekki og passar sérlega vel með ísköldu hvítvíni, salati og hvítlauksbrauði.

Uppskrift fyrir fjóra 350 g spaghetti frá De Cecco 1 msk ólífuolía 270 g beikonsneiðar 2 msk smjör 2 hvítlauksrif 4 eggjarauður 2 dl rifinn parmesan ostur + meira til að toppa með1/2-1 dl steinselja, smátt skorinSalt og piparPastavatn eftir smekk

Aðferð

  1. Byrjið á því að smátt skera beikon, aðskilja eggjarauðurnar frá eggjahvítunum, rífa parmesan ostinn og smátt skera steinseljuna. Gott að hafa allt tilbúið áður en þið sjóðið spaghetti.

  2. Sjóðið spaghetti eftir leiðbeiningum á pakkningu með smá salti í vatninu.

  3. Steikið beikon upp úr 1 msk ólífuolíu þar til það verður stökkt. Lækkið í hitanum og bætið smjöri saman við.

  4. Hrærið saman eggjarauðum, parmesan osti, steinselju, salti og pipar í skál. Bætið pastavatni saman við til að þynna sósuna eftir smekk en passið að vatnið sé ekki bullsjóðandi (við viljum ekki að eggin eldist).

  5. Bætið spaghetti saman við beikonið á pönnunni og hrærið saman.

  6. Takið pönnuna alveg af hellunni og blandið eggjablöndunni saman við. Það er mikilvægt að hafa ekki hita undir pönnunni þannig að eggin eldist ekki.

  7. Toppa svo í lokin með parmesan osti, steinselju og njóta.

Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti


Samstarf við Innnes

Comments


bottom of page