top of page

OFNBAKAÐAR KJÖTBOLLUR MEÐ SPAGHETTI

  • Jan 1
  • 2 min read

Hér kemur uppskrift að ljúfum „comfor“ rétti. Ítalskar kjötbollur með pestó, dásamlegri sósu og spaghetti bakað í ofni með ferskum mozzarella og toppað með basiliku. Punkturinn yfir i-ið er að setja pestó með sólþurrkuðum tómötum í kjötbollurnar. Nammi! Mér finnst frábært að elda ríflegan skammt og eiga í hádegismat daginn eftir. Þessi uppskrift hentar vel í tvær máltíðir fyrir tvo fullorðna og tvö börn.


Uppskrift fyrir fjóra til fimm fullorðna 800 g nautahakk ½ krukka pestó með sólþurrkuðum tómötum frá Filippo berio 1 dl kotasæla 1 dl parmigiano reggiano, rifinn 1 egg 2 hvítlauksrif 1 tsk origano Salt & pipar Ólífuolía

Ferskur mozzarella Spaghetti frá De Cecco Fersk basilika

Sósa Hunts tómatssósa í dós 1-2 hvítlauksrif 1 dl parmigano reggiano 2 msk Philadelphia rjómaostur Salt & pipar

Aðferð

  1. Byrjið á því að blanda saman nautahakki, pestó, kotasælu, parmigiano reggiano, eggi, pressuðu hvítlauksrifi, origano, salti og pipar í skál. Hnoðið öllu saman með höndunum eða notið hrærivél.

  2. Mótið kjötbollurnar með matskeið þannig að þær verði allar svipaðar að stærð.

  3. Dreifið bollunum í eldfast form klætt með bökunarpappír.

  4. Drefiði ólífuolíu yfir þær og bakið í 20-25 mín við 190°C eða þar til bollurnar eru eldaðar í gegn.

  5. Sjóðið spaghetti eftir leiðbeiningum og útbúið sósuna á meðan kjötbollurnar eru að bakast.

  6. Sósan: Hrærið saman tómatsósu, pressuðu hvítlauksrifi, parmigiano reggiano, rjómaosti, salti og pipar í potti við vægan hita.

  7. Dreifið spaghetti í eldfast mót. Því næst dreifið kjötbollunum ofan á og hellið sósunni yfir.

  8. Rífið ferskan mozzarella og dreifið yfir og bakið í ofni í 5-7 mínútur eða þar til osturinn er bráðnaður. 

  9. Berið fram með ferskri basiliku og parmigiano reggiano.



Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti


Comments


bottom of page