top of page

DJÚSÍ OFNBAKAÐ PASTA

  • Jan 1
  • 1 min read

Ég gerði þennan girnilega og góða pastarétt í samstarfi við Innnes og verð að mæla með þessu! Pasta í dásamlegri ostasósu, ofnbakað með nautahakki. Oft langar mann í eitthvað extra djúsí og þá er þessi réttur alveg málið. Rétturinn kallast „million dollar spaghetti“ en ég ákvað að nota penne pasta í staðinn fyrir spaghetti og það er jafnvel bara betra! Að auki slær hann líka í gegn hjá yngri kynslóðinni!

Fyrir 4-6 500 g nautahakk 250 g tómatpassata 2-3 msk tómatpúrra 1/2 laukur 2 hvítlauksrif, pressuð Kjötkraftur Salt og pipar 400 g penne pasta frá De Cecco 3 egg 4 msk steinselja

1 ½ dl Parmigiano-Reggiano 4 msk smjör 2 dl kotasæla 1 Philadelphia ostur Rifinn mozzarella ostur

Aðferð

  1. Byrjið á að skera laukinn smátt og steikið hann við vægan hita. Bætið nautahakkinu út í og steikið. 

  2. Blandið tómatpassata, hvítlauk og kjötkrafti saman við nautahakkið. Saltið og piprið eftir smekk.

  3. Sjóðið penne pasta eftir leiðbeiningum á pakkningu.

  4. Skerið steinselju og rífið Parmigiano. Þeytið eggin, steinseljuna og Parmigiano saman í skál.

  5. Sigtið vatnið frá pastanu og setjið aftur í pottinn.

  6. Bætið smjöri og eggjablöndu út í og hrærið. Hrærið kotasælu og rjómaosti út í og setjið pastablönduna í eldfast mót.

  7. Smyrjið nautahakkinu ofan á pastað og stráið mozzarella osti yfir. 

  8. Bakið í 15-20 mínútur við 180°C eða þar til osturinn er bráðnaður. Gott að bera fram með fersku salati.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti

Comments


bottom of page