TACOSKÁLAR Á 15 MÍNÚTUM
- Jan 2
- 1 min read
Einn af mínum uppáhalds hversdagsréttum sem klikkar aldrei! Tekur 15 mínútur að elda og krakkarnir elska þetta. Ég set oft kínóa, baunir eða nautahakk í réttinn sem mér finnst svo frábært. Djúsí og krönsí grænmetisréttur eða með nautahakki sem ég mæli með að þið prófið.

Mæli með þremur tacoskálum á mann 10 stökkar tacoskálar Ólífuolía 1 pkn tilbúið kínóa frá Quinola, baunir eða nautahakk 1 krukka salsasósa Krydd: Laukduft, hvítlauksduft, cumin, salt og pipar Rifinn cheddar ostur Toppa með:Habanero sýrður rjómi (eða venjulegur) Ostasósa Smátt skorin gúrka, eftir smekk Smátt skorinn tómatur, eftir smekk 1-2 avókadó, stappað með salti, pipar og lime safa Limebátar
Aðferð:
Steikið kínóa uppúr ólífuolíu og kryddið eftir smekk.
Blandið salsasósunni saman við.
Dreifið tacoskálunum á bökunarplötu og fyllið þær með kínóablöndunni og rifnum osti.
Bakið í ofnið við 190°C í 10 mínútur eða þar til osturinn er bráðnaður.
Toppið með sýrðum rjóma, ostasósu, gúrku, tómötum, avókadó og kreystið lime safa yfir. Mmmm & njótið vel!



Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti





Comments