KJÚKLINGALÆRI MEÐ SÍTRÓNU & KRAMDAR KARTÖFLUR
- Jan 2
- 2 min read
Updated: Feb 11
Hér kemur uppskrift að gómsætum ofnbökuðum kjúklingalærum með ferskum kryddjurtum, hvítlauk, sítrónu og chili. Kjúklingurinn er borinn fram með krömdum kartöflum, kaldri parmesan sósu og fersku salati. Þennan rétt hef ég oft og mörgum sinnum gert og hann klikkar aldrei. Mæli með að þið prófið ykkur áfram með kryddjurtirnar, þær mega vera færri en uppskriftin segir til um.

Kjúklingur Úrbeinuð kjúklingalæri frá Rose Poultry 2 msk ólífuolía Safi úr ½ sítrónu 3-4 hvítlauksrif, pressuð
1 msk ferskt oregano, smátt saxað 2 msk fersk steinselja, smátt söxuð 2 msk fersk basilika, smátt söxuð
Salt og pipar1 chili, skorið í sneiðar Sítrónusneiðar eftir smekk
Kartöflur 12-14 litlar kartöflur 2-3 msk smjör 2-3 msk ólífuolía Krydd: Salt, pipar, laukduft og hvítlauksduft 1 dl rifinn Parmigiano reggiano Fersk steinselja
Köld parmesan sósa 2 dl sýrður rjómi 2 msk Heinz majónes Safi úr ½ sítrónu Krydd: Salt, pipar, laukduft og hvítlauksduft 1 dl rifinn Parmigiano reggiano
Aðferð
Setjið kjúklinginn í eldfast mót og blandið saman við ólífuolíu, sítrónusafa, pressuð hvítlauksrif, oregano, steinselju, basiliku, salt og pipar.
Dreifið chili sneiðum yfir og bakið í ofni við 190°C í 25 mínútur.
Takið kjúklinginn úr ofninum og drefið sítrónusneiðum yfir. Haldið áfram að baka kjúklinginn í ofninum í 10-15 mínútur eða þar til kjúklingurinn er fullbakaður.
Kartöflur
Sjóðið kartöflur í 30 mínútur eða þar til þær eru orðnar mjúkar.
Dreifið þeim á bökunarplötu þaktri bökunapappír og hafið smá bil á milli þeirra.
Kremjið þær létt með kartöflustappara, morteli eða gaffli.
Penslið þær með ólífuolíu, smjöri og kryddið með salti, pipar, laukdufti og hvítlauksdufti
Bakið í ofni í 10-13 mínútur og dreifið rifnum parmesan osti og ferskri steinselju yfir.
Sósa
Blandið öllum hráefnunum vel saman með skeið.



Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti
Samstarf við Innnes











Comments