top of page

GRILLAÐAR KJÚKLINGALUNDIR & KARTÖFLUSALAT

  • Jan 1
  • 2 min read

Kjúklingalundir í dásamlegum kryddlegi bornar fram með kartöflusalati. Þetta er ekta sumargrill réttur sem er þægilegur að bera fram á sumardögum því hægt er að útbúa kartöflusalatið og kryddlöginn kvöldinu áður og fá þannig meiri tíma til að njóta. Ég notaði Maille sinnepið góða í bæði kryddlögin og kartöflusalatið en hef einmitt mikið notað þetta sinnep í gegnum tíðina. Hugmyndina að kjúklingnum fékk ég frá foreldrum mínum sem útbúa oft svipaðan rétt en mér finnst estragonið og sinnepið gera kjúklinginn svo góðan. Kartöflusalatið er líka klassískt, gott og passar sérlega vel með kjúklingnum.

500-600 g kjúklingalundir 1 msk Maille sinnep 1 msk ólífuolía Safi úr ½ sítrónu 1 ½ estragon 1-2 hvítlauksrif, pressuð eða rifin ½ tsk salt ¼ tsk pipar

Kartöflusalat 600 g kartöflur 1 dl majónes ½ dl sýrður rjómi Safi úr ca ½ sítrónu 2 msk Maille dijon sinnep 3 msk blaðlaukur, smátt skorinn ½ dl fersk steinselja ½ dl ferskur kóríander ½ tsk laukduft ½ tsk hvítlauksduft Salt & pipar eftir smekk

Aðferð

  1. Blandið saman sinnepi, ólífuolíu, sítrónusafa, estragoni, hvítlauksrifjum, salti og pipar í stóra skál.

  2. Snyrtið kjúklinginn og blandið honum vel saman við kryddlögin. Leyfið honum að standa í a.m.k. klukkustund. 

  3. Sjóðið kartöflur. Skrælið þær og skerið í bita. Ég keypti forsoðnar kartöflur sem er líka sniðugt.

  4. Blandið saman majónesi, sýrðum rjóma, sítrónusafa, sinnepi, blaðlauk, steinselju, kóríander og kryddi í stóra skál. 

  5. Hellið kartöflunum útí og hrærið varlega saman.

  6. Grillið kjúklinginn. Berið fram með kartöflusalatinu og njótið. Einnig gott að bera þetta fram með fersku salati eða öðru grænmeti sem ykkur finnst gott.



Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti


Samstarf við Ísam

Comments


bottom of page