FYLLTAR BAKAÐAR KARTÖFLUR
- Oct 20, 2025
- 1 min read
Hér kemur uppskrift að fylltum kartöflum sem eru fullkomnar sem meðlæti með grillmatnum. Bakaðar kartöflur fylltar með Philadelphia rjómaosti með graslauk, beikoni, cheddar osti og ferskum graslauk. Algjört nammi og er einnig gott eitt og sér.

6 stórar bökunarkartöflur
1 Philadelphia með graslauk
12-15 beikon sneiðar
2 dl rifinn cheddar ostur
⅔ dl graslaukur
Salt og pipar
Chili flögur (má sleppa)
Sýrður rjómi
Aðferð
Byrjið á því að baka kartöflur í klukkutíma við 190°C eða þar til þær verða fullbakaðar og mjúkar að innan. Leyfið þeim að kólna aðeins.
Bakið beikonið við 200°C í 10-12 mínútur eða þar til það verður vel stökkt. Skerið það smátt.
Skerið kartöflurnar í tvennt, takið innan úr þeim með skeið (skiljið samt smá eftir inn í kartöflunum) og setjið í skál.
Bætið út í rjómaostinum, beikoninu, 1½ dl cheddar osti, ½ dl graslauk, salti og pipar og hrærið vel saman.
Fyllið kartöflurnar jafnt og þétt með fyllingunni og stráið restinni af cheddar ostinum yfir þær.
Bakið við 190°C í 8-10 mínútur eða skellið þeim á grillið.
Toppið með sýrðum rjóma, restinni af graslauknum, beikoni og chili flögum eftir smekk. Njótið vel.



Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti
Uppskriftin er gerð í samstarfi við Innnes















Comments