FERSKIR MAÍSKÓLFAR MEÐ RJÓMAOSTABLÖNDU
- Oct 9, 2025
- 1 min read
Ljúffengir maískólfar sem eru í miklu uppáhaldi. Þeir eru smurðir með blöndu af majónesi, rjómaosti, cayenne pipar, kóríander og parmesan osti. Bragðgóð blanda sem passa vel við maískólfann. En vá hvað ég elska þegar ferskur maís er til í verslunum! Þá er þetta oft á boðstólum og sérstaklega gott með grillmatnum. Mæli með að þið prófið!

Fyrir 2
2 ferskir maískólfar
1-2 msk smjör
2 msk Heinz majónes
2 msk Philadelpia rjómaostur
Cayenne pipar eftir smekk
Salt
Ferskur parmesan ostur eftir smekk
1 msk ferskur kóríander, smátt saxaður
Aðferð:
Skerið laufblöðin af maískólfunum með því að skera af efsta hlutann af því (þar sem maískólfinn er minnstur um sig) og flettið laufblöðunum af þeim.
Leggið maískólfana í eldfast mót, dreifið smjörinu ofan á þá og bakið í 30 mínútur við 190°C. Einnig er gott að pakka þeim í álpappír og grilla. Ég mæli með að snúa þeim 2 sinnum á meðan þeir eru að bakast.
Hrærið saman majónesi, rjómaosti, cayenne pipar, salti og kóríander.
Smyrjið blöndunni á maískólfanna þegar þeir eru búnir að bakast og dreifið parmesan osti yfir þá. Gott að toppa með ferskum kóríander.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti



Comments