top of page
Search


KJÚKLINGALÆRI MEÐ SÍTRÓNU & KRAMDAR KARTÖFLUR
Hér kemur uppskrift að gómsætum ofnbökuðum kjúklingalærum með ferskum kryddjurtum, hvítlauk, sítrónu og chili. Kjúklingurinn er borinn fram með krömdum kartöflum, kaldri parmesan sósu og fersku salati. Þennan rétt hef ég oft og mörgum sinnum gert og hann klikkar aldrei. Mæli með að þið prófið ykkur áfram með kryddjurtirnar, þær mega vera færri en uppskriftin segir til um. Kjúklingur Úrbeinuð kjúklingalæri frá Rose Poultry 2 msk ólífuolía Safi úr ½ sítrónu 3-4 hvítlauksrif, p


RAUÐSPRETTA Í DÁSAMLEGRI SÓSU
Það er fátt betra en ljúffengur fiskréttur og hvað þá þegar hann inniheldur rauðsprettu. Mér finnst rauðspretta svo bragðgóð og er hún í miklu uppáhaldi. Rauðspretta í hvítlauksrjómasósu með hvítvíni, sítrónu, kapers og ólífum. Gott að bera réttinn fram með smátt skornum kartöflum með parmigiano reggiano, ferskum aspas og góðu hvítvíni. Fyrir 2 600 g rauðspretta (500 g roðflett. Ég læt roðfletta hana í fiskibúðinni) 1 lítið egg 1 dl hveiti Krydd: Salt, pipar & laukduft eftir


FISKIBORGARI Í TEMPURA & KARTÖFLUBÁTAR
Hafið þið smakkað fiskiborgara? Þessi er sjúklega góður! Djúpsteiktur þorskhnakki í tempura deigi með dásamlegri sósu, avókadó, tómötum og hvítkáli í brioche hamborgarabrauði. Ég bar þetta fram með kartöflubátum með fetaosti og steinselju. Ég er búin að gera þennan borgara nokkrum sinnum og hann er alltaf jafn góður! Þorskhnakki passar mjög vel í þennan rétt en ég er viss um að það er gott að vera með annan hvítan fisk eins og t.d. löngu. Uppskrift gerir 4 borgara Þorskhnakka


KJÚKLINGA-& GRÆNMETIS GRILLSPJÓT
Kjúklingaspjót í sinneps-og hvítlauks kryddlegi, grænmetisspjót og dásamleg köld sinnepssósa með sætu sinnepi frá Heinz. Sumarlegur og gómsætur réttur sem allir geta gert og passar sérlega vel með köldu hvítvíni. Ég notaði spjót úr stáli sem ég keypti í Kokku og þau eru afar þægileg en auðvitað er hægt að nota tréspjót (sem fást í matvöruverslunum) en þá þarf að muna að láta þau liggja í bleyti áður en þau eru notuð. Fyrir 3-4 Kjúklingaspjót 6-7 spjót 6-7 úrbeinuð kjúklingalæ


GRILLAÐAR KJÚKLINGALUNDIR & KARTÖFLUSALAT
Kjúklingalundir í dásamlegum kryddlegi bornar fram með kartöflusalati. Þetta er ekta sumargrill réttur sem er þægilegur að bera fram á sumardögum því hægt er að útbúa kartöflusalatið og kryddlöginn kvöldinu áður og fá þannig meiri tíma til að njóta. Ég notaði Maille sinnepið góða í bæði kryddlögin og kartöflusalatið en hef einmitt mikið notað þetta sinnep í gegnum tíðina. Hugmyndina að kjúklingnum fékk ég frá foreldrum mínum sem útbúa oft svipaðan rétt en mér finnst estragoni


GUACAMOLE MEÐ MANGÓ OG FETAOSTI
Ferskt og gott guacamole með mangó og fetaosti. Berið það fram með tortillaflögum eða með uppáhalds mexíkóska réttinum ykkar. 2 avocado 1/2 sítróna 1/2 dl fetaostur Ólífuolía Salt og pipar 1 chili 2 msk blaðlaukur 1 mangó, smátt skorið Aðferð Blanda saman avocado, sítrónusafa, fetaosti, ólífuolíu, salti og pipar í töfrasprota eða matvinnsluvél. Ef þið ætlið að gera gróft guacamole er betra að stappa innihaldsefnunum saman. Skerið mangó, chili og blaðlauk smátt og blandið sama


EINFALT NAAN BRAUÐ
Hér kemur uppskrift að mjög einföldu og ljúffengu naan brauði sem hefur einungis þrjú innihaldsefni ásamt kryddi! Svo fljótlegt að útbúa, bara skella hráefnunum saman í skál, hræra saman með sleif og mynda deigkúlur. Fletja deigið út og steikja á pönnu. Pensla í lokin með bræddu smjöri og voila. Einstaklega gott að bera það fram með indverskum mat. 6-8 lítil naan brauð 2 dl fínt spelt (& meira ef þarf) 1 dl hreint jógúrt 1 tsk lyftiduft 1/4 tsk salt 1/2 tsk garam masala (má s


FYLLTAR BAKAÐAR KARTÖFLUR
Hér kemur uppskrift að fylltum kartöflum sem eru fullkomnar sem meðlæti með grillmatnum. Bakaðar kartöflur fylltar með Philadelphia rjómaosti með graslauk, beikoni, cheddar osti og ferskum graslauk. Algjört nammi og er einnig gott eitt og sér. 6 stórar bökunarkartöflur 1 Philadelphia með graslauk 12-15 beikon sneiðar 2 dl rifinn cheddar ostur ⅔ dl graslaukur Salt og pipar Chili flögur (má sleppa) Sýrður rjómi Aðferð Byrjið á því að baka kartöflur í klukkutíma við 190°C eða þa


FERSKIR MAÍSKÓLFAR MEÐ RJÓMAOSTABLÖNDU
Ljúffengir maískólfar sem eru í miklu uppáhaldi. Þeir eru smurðir með blöndu af majónesi, rjómaosti, cayenne pipar, kóríander og parmesan osti. Bragðgóð blanda sem passa vel við maískólfann. En vá hvað ég elska þegar ferskur maís er til í verslunum! Þá er þetta oft á boðstólum og sérstaklega gott með grillmatnum. Mæli með að þið prófið! Fyrir 2 2 ferskir maískólfar 1-2 msk smjör 2 msk Heinz majónes 2 msk Philadelpia rjómaostur Cayenne pipar eftir smekk Salt Ferskur parmesan o
bottom of page