top of page

RAUÐSPRETTA Í DÁSAMLEGRI SÓSU

  • Jan 2
  • 2 min read

Það er fátt betra en ljúffengur fiskréttur og hvað þá þegar hann inniheldur rauðsprettu. Mér finnst rauðspretta svo bragðgóð og er hún í miklu uppáhaldi. Rauðspretta í hvítlauksrjómasósu með hvítvíni, sítrónu, kapers og ólífum. Gott að bera réttinn fram með smátt skornum kartöflum með parmigiano reggiano, ferskum aspas og góðu hvítvíni.

Fyrir 2 600 g rauðspretta (500 g roðflett. Ég læt roðfletta hana í fiskibúðinni) 1 lítið egg 1 dl hveiti Krydd: Salt, pipar & laukduft eftir smekk 50-70 g smjör ½ dl hvítvín, ég nota Adobe Reserva Chardonney 1 msk safi úr sítrónu 2 msk Organic Liquid hvítlaukur (Fæst í Fjarðarkaupum) 1-2 dl rjómi 1 msk kapers 10-15 ólífur eftir smekk (má sleppa) Fersk steinselja

Kartöflur 250 g kartöflur 1 msk ólífuolía ½-1 msk Organic Liquid hvítlaukur (Fæst í Fjarðarkaupum) Salt & pipar ½ dl Parmigiano reggiano

Aðferð

  1. Byrjið á því að skera kartöflur smátt og blanda saman við ólífuolíu, hvítlaukinn, salt og pipar. Setjið í eldfast form og bakið í ofni við 190°C í 20 mínútur eða þar til kartöflurnar eru bakaðar í gegn. Á meðan kartöflurnar bakast þá er gott að græja fiskinn.

  2. Skerið rauðsprettuna í bita. Kryddið bitana og veltið þeim upp úr hveiti. Pískið egg í skál og veltið rauðsprettubitunum upp úr eggi og að lokum aftur upp úr hveiti.

  3. Bræðið smjör á pönnu á háum hita og steikið fiskinn upp úr smjörinu í 3-4 mínútur á hvorri hlið eða þar til hann er kominn með gyllta og stökka húð.

  4. Bætið ólífum, kapers, hvítvíni, safa úr sítrónu og fljótandi hvítlauknum út í. Leyfið að malla í 1 mínútur og bætið rjómanum út í. Leyfið þessu að malla í nokkrar mínútur.

  5. Blandið parmesan osti saman við kartöflurnar, dreifið steinselju yfir rauðsprettuna og njótið.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti

Comments


bottom of page