SMØRREBRØD MEÐ RAUÐSPRETTU & HEIMAGERÐU REMÚLAÐI
- Jan 1
- 2 min read
Þetta smørrebrød er orðin árleg hefð í aðventunni hjá mér. Ég er alin upp við að borðað sé smørrebrød á aðventunni og mér finnst það ómissandi hefð. Rauðsprettan er svo dásamlega góð en hún hefur lengi verið í uppáhaldi hjá mér. Ég baka hana í ofni því mér finnst það bæði betra og fljótlegra því þá undirbý ég meðlætið á meðan hún bakast. Hér er rauðsprettan borin fram á rúgbrauði með rauðkáli og remúlaði. Það er ljúffeng blanda sem passar vel saman. Punkturinn yfir i-ið er að gera remúlaðið sjálfur en það er svo miklu betra heimagert.

Fyrir fjóra 800 g rauðspretta, best að biðja um að roðfletta 1 dl hveiti 2 egg 3-4 dl panko rasp Salt og pipar 20-40 g smjör Rúgbrauð, mér finnst best heilkorna rúgbrauð Ferskt rauðkál, eftir smekk Steinselja Heimagert remúlaði 3-4 sýrðar gúrkur 1 msk capers 4 msk majónes 2 msk sýrður rjómi 2 msk dijon sinnep Karrý Túrmerik Salt og pipar
Aðferð
Skerið rauðsprettuna í bita(roðflettið ef það þarf) sem passa á rúgbrauð.
Pískið egg í skál. Hellið hveiti á disk og hrærið saman brauðraspi og kryddi í djúpum diski eða skál.
Veltið fiskinum upp úr hveitinu, egginu og síðan raspinum.
Skerið smjör í litla teninga og raðið í botninn á eldföstu formi.
Dreifið fiskinum ofan á smjörið og dreifið meira smjöri ofan á fiskinn. Bakið í 30 mínútur við 200°C.
Skerið rauðkálið í þunnar ræmur.
Smyrjið rúgbrauðið með smjöri, dreifið rauðkálinu ofan á, því næst kemur rauðsprettan og toppið svo með remúlaði og ferskri steinselju.
Heimagert remúlaði
Skerið sýrðu gúrkurnar smátt.
Hrærið saman majónesi, sýrðum rjóma, sinnepi og kryddi. Varist að krydda of mikið með karrý eða túrmeriki, mæli með að smakka sig áfram.
Bætið svo við sýðrum gúrkum og capers og hrærið.

Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti



Comments