GRILLAÐAR BBQ KJÚKLINGALUNDIR
Uppskrift sem er fullkomin þegar þið viljið eitthvað einfalt, fljótlegt og bragðgott af grillinu. Ljúffengar kjúklingalundir penslaðar með Heinz Sweet Sticky & Smooth BBQ sósu, kartöflur í álpappír á grillinu og köld sósa sem passar fullkomlega með. Mæli með að bera fram með fersku salati, maískólfum eða öðru góðu grænmeti.

Fyrir 4
700 g kjúklingalundir
1 msk ólífuolía 1 tsk reykt paprika 1 tsk hvítlauksduft 1 tsk salt ½ tsk svartur pipar
5–6 msk Heinz Sweet Sticky & Smooth BBQ sósa
Kartöflur í álpappír
800 g litlar kartöflur 1 msk ólífuolía 1/2 tsk hvítauksduft
1 tsk laukduft
Salt og pipar
Sósa 2 dl sýrður rjómi 1/2 dl Heinz majónes 1 tsk hunang
1 tsk dijon sinnep 1 msk fersk steinselja, smátt söxuð
1/2 tsk hvítlauksduft
Salt og pipar
Aðferð
Blandið kjúklingalundunum saman við ólífuolíu, reykta papriku, hvítlauksduft, salt og pipar.
Skerið kartöflurnar í tvennt og blandið saman við ólífuolíu, salti, pipar, hvítlauks- og laukdufti. Pakkið þeim inn í álpappír og grillið þar til þær eru mjúkar í gegn, í um 25–35 mínútur.
Hrærið saman öllum hráefnum fyrir sósuna og geymið í kæli þar til hún er borin fram.
Grillið kjúklingalundirnar þar til þær eru nánast tilbúnar. Penslið þær þá ríkulega með Heinz Sweet Sticky & Smooth BBQ sósu og grillið áfram í 2–3 mínútur þannig að sósan karamelliserist fallega.
Berið fram með kartöflunum, sósunni, fersku salati og njótið.



Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti
Samstarf við Innnes



Comments