GRILLAÐ LAMBAKONFEKT MEÐ KRÖMDUM KARTÖFLUM
- Feb 4
- 2 min read
Þegar þið viljið dekra við ykkur eða bjóða í almennilega grillveislu, þá er lambakonfekt algjör lúxus en samt ótrúlega einfalt að útbúa. Lambakonfekt í Caj P marineringu og borið fram með kaldri rjómaostasósu og stökkum kartöflum af grillinu. Þetta slær alltaf í gegn! Best af öllu er að hægt er að undirbúa allt fyrirfram sem gerir þetta þægilegt hvort sem þið eruð að fá gesti í mat eða að grilla úti í ferðalagi.

Fyrir þrjá-fjóra
800–900 g lambakonfekt (með beini)
1 dl Caj P Original marinering
1–2 msk ólífuolía (ef þarf að þynna marineringuna)
Köld rjómaostasósa með graslauk
200 g Philadelphia rjómaostur
½ dl sýrður rjómi eða grísk jógúrt
1 tsk hvítlauksduft eða1 hvítlauksrif pressað
1 tsk laukduft
1 tsk sítrónusafi
1 tsk Dijon sinnep (má sleppa)
2 msk ferskur graslaukurm, smátt saxað
Salt og pipar eftir smekk
Kramdar kartöflur
800 g litlar kartöflur
2–3 msk ólífuolía
2–3 hvítlauksrif, pressuð
½ tsk sjávarsalt
¼ tsk svartur pipar
1 dl rifinn parmesan (eða annar ostur sem þú átt til)
Fersk steinseja
Aðferð
Byrjið á að setja lambakonfektið í poka eða skál og hellið Caj P marineringunni yfir ásamt ólífuolíu. Látið liggja í marineringunni í minnst 4 klst eða yfir nótt ef þið hafið tíma.
Blandið saman öllum hráefnum í sósuna og smakkið til með salti og pipar. Kælið þar til hún er borin fram.
Sjóðið kartöflurnar í ca. 20-30 mínútur, eða þar til þær eru orðnar mjúkar og tilbúnar.
Merjið kartöflurnar varlega með botni á glasi. Blandið saman ólífuolíu og hvítlauk, penslið yfir kartöflurnar og kryddið með salti og pipar. Stráið parmesan yfir.
Grillið kartöflurnar á álpappír í 8–10 mínútur þar til þær verða stökkar og gullinbrúnar. Stráið ferskri steinselju yfir.
Grillið lambakonfektið á beinum hita í ca. 4–5 mínútur á hvorri hlið, þar til það er fallega brúnað. Færið yfir á óbeinan hita og grillið áfram í 5–10 mínútur, eftir þykkt og smekk. Látið hvíla í 5 mínútur áður en þið berið það fram.
Berið lambið fram með stökkum kartöflum og köldu sósunni.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti
Samstarf við Innnes







Comments