top of page

ÍTALSKAR STEIKARLOKUR MEÐ BURRATA & ARRABIATA

  • Feb 10
  • 2 min read

Súrdeigsbrauð steikt upp úr smjöri, arrabiata sósa, parmesan og smjörsteiktur laukur, bakað í ofni og toppað með burrata, klettasalati, mínútusteik, litlum tómötum og ferskri basiliku. Allt sem ítölsk samloka á að vera. Hún er djúsí, einföld og algjör comfort bomba! Borðuðum þetta með góðu ítölsku rauðvíni og það klikkaði ekki!


Uppskrift fyrir 4 (2 sneiðar á mann)

3 mínútusteikur (u.þ.b. 400–450 g samtals) Ólífuolía til steikingar Salt og pipar 2 laukar Smjör til steikingar (u.þ.b. 50 g samtals) 8 sneiðar af góðu súrdeigsbrauði eða ciabatta Aarrabiata sósa frá Filippo Berio (1-2 msk á hverja sneið) Rifinn parmesan ostur 2 burrata kúlur (¼ á hverja sneið) Klettasalat 120 g litlir tómatar (kirsuberjatómatar), skornir í tvennt Fersk basilika


Aðferð:

  1. Kryddið mínútusteikurnar með salti og pipar og steikið á heitri pönnu í smá ólífuolíu – rétt undir 1 mínútu á hvorri hlið eða þar til þær eru fullkomlega eldaðar eftir þykkt eða grillið. Látið hvíla og skerið í þunnar sneiðar.

  2. Sneiðið laukinn og steikið rólega upp úr smjöri þar til hann verður mjúkur og gylltur – um 10–15 mínútur.

  3. Steikið allar brauðsneiðarnar á báðum hliðum upp úr smjöri á pönnu þar til þær verða gullinbrúnar og stökkar að utan.

  4. Raðið brauðinu á bökunarpappír á ofnplötu. Smyrjið með arrabiata sósu, stráið parmesanosti yfir og dreifið smjörsteiktum lauk ofan á.

  5. Bakið í ofni við 200°C í um 8–10 mínútur, þar til brauðið er heitt og osturinn aðeins farinn að bráðna.

  6. Takið úr ofni og toppið með rifnum burrata (1/4 kúla á hverja sneið), klettasalati, nautakjöti, litlum tómötum og ferskri basiliku.

  7. Berið fram strax – helst með góðu víni og fólki sem kann að meta steik í samlokuformi.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti


Samstarf við Innnes

Comments


bottom of page