top of page

STEIKAR TACOS

  • Feb 7
  • 2 min read

Grillað nautakjöt í tacos með havartí osti, lauk, salati, tómötum og léttri kóríander- og graslaukssósu er algjört nammi! Þessi réttur er búinn að vera margoft í matinn hjá mér í sumar og núna verð ég bara að deila þessu með ykkur! Mér finnst geggjað að kaupa bara mínútusteik, setja góðan kryddlög og grilla örsnöggt. Einfalt og gott sem þið verðið að prófa! Psst… það er mjög gott að bera þetta fram með ískaldri Stellu ef að þið viljið gera extra vel við ykkur.


500 g nauta mínútusteik

2 msk Caj P grillolía

1 tsk Cayenne pipar

Salt og pipar

1 stór laukur

1 rauðlaukur

1-2 msk smjör

Litlar tortillur

Ólífuolía

Rifinn havarti ostur

Salat

Tómatar

Kóríander


Sósa

180 g sýrður rjómi

½ tsk sjávarsalt

¼ tsk hvítlauksdudt

½ tsk laukduft

¼ tsk pipar

1 msk smátt skorinn graslaukur

1 ½ msk smátt skorinn kóríander


  1. Blandið Caj P grillolíu, cayenne pipar, salti og pipar saman við mínútusteikina. s

  2. Grillið steikina á vel heitu grillinu í 1-2 mínútur hvora hlið. Passið að grilla ekki of lengi því þá verður kjötið ekki eins gott.

  3. Blandið saman í sósuna. Mæli með að smakka hana til og bragðbæta eftir smekk.

  4. Skerið tómata smátt og salatið strimla.

  5. Rífið havarti ostinn.

  6. Skerið lauk og rauðlauk í strimla. Steikið upp úr smjöri þar til laukurinn er mjúkur og vel steiktur.

  7. Dreifið tortillunum á bökunarplötu þakta bökunarpappír og penslið ólífuolíu á þær. Því næst dreifið rifnum havarti osti yfir og bakið inní ofni við 180°C eða þar til osturinn er bráðnaður.

  8. Dreifið, salatinu, sósunni, lauknum, tómötunum, kjötinu, tómötunum og smá ferskum kóríander á tortillurnar eftir smekk og njótið vel.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti


Samstarf við Innnes

Comments


bottom of page