TACO MEÐ ANDACONFIT
- Jan 2
- 1 min read
Tacos fylltar með rifnu andarconfit, rauðkálshrásalati með smá appelsínu twisti, granatepla salsa og fetaosti. Smá jólalegar og bragðgóðar og einfaldar að útbúa. Passar virkilega vel með ísköldum Corona bjór og mun slá gegn í matarboðunum á aðventunni eða bara hvenær sem er

Fyrir tvo-þrjá (mæli með þremur taco á mann) 2 andaconfit frá Valette 6-8 litlar tortillur
Ólífuolía til steikingar
Rauðkálshrásalat 5 dl rauðkál, smátt skorið 1 dl majónes frá Heinz 1dl sýrður rjómi 3 msk safi úr appelsínu 4-6 jalapeno sneiðar úr krukku
Granatepla salsa 1 dl fræ úr granatepli 2-3 msk rauðlaukur, smátt skorinn1 tómatur Ferskt kóríander eftir smekk 2 msk safi úr appelsínu
Toppa með fetaosti
Aðferð
Bakið andaconfit eftir leiðbeiningum á dós og rífið það með tveimur göfflum.
Skerið rauðkálið smátt.
Blandið saman í skál majónesi, sýrðum rjóma, safa úr appelsínu og smátt skornu jalapeno eða blandið saman með töfrasprota.
Hrærið blöndunni saman við rauðkálið.
Smátt skerið rauðlauk, tómat og kóríander og blandið saman ásamt fræjum úr granatepli og safa úr appelsínu.
Steikið litlu tortillurnar upp úr ólífuolíu þar til þær verða stökkar en passið samt að þær brenni ekki.
Raðið svo hrásalati, önd, granatepla salsa og smá fetaosti á tortillu og njótið vel.



Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti














Comments