top of page

GRILLSPJÓT MEÐ CHIMICHURRI & FERSKUR MAÍS

  • Jan 1
  • 2 min read

Grilluð nautaspjót með grænmeti, chimichurri sósu og ferskum maís er afar gómsætur réttur. Chimichurri er svo fersk og góð sósa en hún inniheldur ferskar kryddjurtir, ólífuolíu, hvítvínsedik, chili og hvítlauk. Sósan er er ekki aðeins borin fram með kjötinu heldur er það látið marinerast í henni og er því gott að undirbúa kjötið með góðum fyrirvara svo það fái tíma til að drekka í sig dásamlega bragðið af sósunni. Ég notaði tilbúið kartöflusmælki með timian sem fæst í Krónunni og kallast Meðlæti með læti og vá hvað það var gott með nautakjötinu. Þægilegt að þræða allt á grillpinnann. Maískólfar með smjöri, parmesan og cayenne pipar setja svo punktinn yfir i-ið.

Uppskrift gerir 7 grillspjót 400-500 g Nauta innralæri eða annað nautakjöt 1 rauðlaukur, skorinn í bita 7-10 sveppir 1 pakkning Smælki með timian frá Krónunni eða aðrar tilbúnar kartöflur

Chimichurri sósa ½ rauðlaukur, smátt skorinn

1 rauður chili, smátt skorið

3-4 hvítlauksrif, rifin eða pressuð

1 tsk salt 80 ml hvítvínsedik ½ dl steinselja, smátt skorin 1 dl kóríander, smátt skorið 2 tsk þurrkað oregano 1 dl ólífuolía

Maískólfar með parmesan Maískólfar Smjör Rifinn parmesan ostur Cayenne pipar

Aðferð

  1. Byrjið á því að útbúa Chimichurri sósuna. Smátt skerið rauðlauk, steinselju og kóríander. Fræhreinsið chili og skerið smátt. Skerið allt extra smátt.

  2. Blandið saman rauðlauk, chili, hvítlauksrifi, hvítvínsediki og salti í skál. Leyfið að standa í 10 mínútur.

  3. Hrærið steinselju, kóríander, oregano og ólífuolíu saman við.

  4. Skerið nautakjötið í bita og blandið saman við 4 msk af chimichurri sósunni. Leyfið því að standa í klst eða meira. 

  5. Þræðið kjöt, rauðlauk, sveppi og smælki til skiptis á grillpinna. 

  6. Grillið pinnana í 4-5 mínútur á hverri hlið eða þar til kjötið er eldað eftir smekk.

  7. Berið fram með restinni af chimichurri sósunni og grilluðum maískólfum.

Maískólfar með parmesan

  1. Leggið maískólfana í kalt vatni í 20 mínútur og þerrið.

  2. Losið hýðið utan af kólfinum en passið að slíta það ekki af stilkinum. Losið alla þræðina utan af maísnum. Lokið maísnum aftur með blöðunum og bindið fyrir endana með maísblaði. 

  3. Grillið maískólfana á meðalheitu grilli í 15-20 mínútur.

  4. Smyrjið kólfana með smjöri og veltið þeim upp úr rifnum parmesan osti. Kryddið með cayenne pipar eftir smekk.

Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti


Samstarf við Krónuna

Comments


bottom of page