top of page

GRILLUÐ KJÚKLINGATACOS

  • Jun 23
  • 1 min read

Ef þið ætlið að grilla þá mæli ég með að grilla kjúkling og setja í tacos. Gómsæt grilluð úrbeinuð kjúklingalæri, mjúkar tortillur, bráðinn ostur og ferskt grænmeti. Fullkomið fyrir grillveisluna eða þegar þið viljið eitthvað einfalt og virkilega gott.



Fyrir 4

600–700 g úrbeinuð kjúklingalæri 1 poki Broken Taco Mild kryddblanda 1 msk ólífuolía

8–12 litlar Broken Taco tortillur

Ólífuolía til að pensla Philadelphia rjómaostur

Rifinn cheddar ostur

2 avókadó

1 lime

Smátómatar

1 stór rauðlaukur

1 msk smjör

Lambhaga salat eða annað salat

Ferskt kóríander

Broken Taco Chipotle Mayo sósa

Broken Taco Pineapple rain sósa

Aðferð

  1. Setjið kjúklingalærin í skál ásamt taco kryddinu og ólífuolíu. Blandið vel saman og leyfið að marinerast í að minnsta kosti 30 mínútur.

  2. Grillið kjúklinginn á vel heitu grilli þar til hann er eldaður í gegn og fallega gylltur í um 6-10 mínútur (snúið eftir 3-5 mínútur). Skerið hann síðan í þunnar sneiðar.

  3. Skerið rauðlaukinn í þunnar sneiðar og steikið upp úr smjöri við meðalhita þar til hann verður mjúkur og sætur.

  4. Skerið avókadó og smátómata niður. Kreystið lime yfir avókadóið. Saxið kóríander gróft og skerið salatið í ræmur.

  5. Penslið hverja tortillu með ólífuolíu, smyrjið með Philadelphia rjómaosti og stráið cheddar osti yfir. Bakið í ofni við 180°C í 3-5 mínútur eða þar til osturinn er bráðnaður.

  6. Fyllið tortillurnar með salati, avókadó, tómötunum, kjúklingi, smjörsteiktum rauðlauk, sósunum og ferskum kóríander. Berið fram strax og njótið.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️


// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti


Öll hráefnin fást í Krónunni | samstarf

Comments


bottom of page