BBQ KÓRESKT KJÚKLINGATACOS
- Feb 12
- 2 min read
Tacos með kóresku twisti. Ljúffengur kjúklingur í BBQ- og gochujang sósu, með pickluðum rauðlauk, gochujang mayo, vorlauk og sesamfræjum. Það er ekkert mál að græja picklaðan lauk sjálfur og hann gerir svo ótrúlega mikið fyrir bragðið. Gochujang paste fæst yfirleitt í asískum matvöruverslunum

5-6 dl rifinn kjúklingur (ég ríf heilan tilbúinn kjúkling) 2 dl Hunts BBQ sósa 2 msk gochujang paste (Fæst t.d. í Fiska og fleiri asískum matvöruverslunum) Litlar tortillur
Fínskorið hvítkál
Vorlaukur
Sesamfræ
Chili Flögur
Picklaður rauðlaukur 1 rauðlaukur, þunnt sneiddur ½ dl hrísgrjónaedik ½ dl vatn
1 msk sykur
½ tsk salt
Gochujan mayo
2 dl Heinz majónes
1 dl sýrður rjómi
1 msk gochujang (minna ef þið viljið ekki sterkt og meira ef þið viljið meira bragð)
1 tsk límónusafi
Smá salt, pipar, hvítlauks- og laukduft
Aðferð
Setjið rauðlauk í skál og hellið hrísgrjónaediki, vatni, sykri og salti yfir. Látið standa í að minnsta kosti 10–15 mínútur.
Rífið kjúklinginn niður í bita og setjið í skál.
Blandið Hunts BBQ sósu og gochujang saman og hrærið út í kjúklinginn þar til hann er orðinn vel þakinn sósu.
Setjið kjúklinginn í eldfast mót og hitið hann í 8-10 mín við 180°C.
Hrærið majónesi, gochujang, limesafa, salit, pipar, hvítlauks- og laukdufti saman í skál og smakkið til eftir því hversu sterka sósu þið viljið hafa.
Steikið tortillurnar í stutta stund á pönnu eða bakið í ofni.
Setjið sósuna, hvítkál, kjúkling og picklaðan rauðlauk í hverja tortillu.
Toppið með vorlauk, sesamfræjum, chili flögum og kreistið límónusafa yfir rétt áður en borið er fram.
Tips:
Það passar einnig vel að bera fram með gúrkum og kóríander.



Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti
Samstarf við Innnes







Comments