top of page

TACOS MEÐ MADRAS KJÚKLINGI

  • Jan 2
  • 1 min read

Tacos með indversku ívafi er ótrúlega gott og einfalt! Ég baka street tacos tortillur með hvítlaukssmjöri þannig að þær fá sérstaklega gott bragð. Ég fylli þær svo með madras kjúklingi, salati, gúrku, rauðlauk og mangó chutney sósu. Þessi réttur gjörsamlega leikur við bragðlaukana.

Miðað er við þrjár tacos tortillur á mann Mission street tacos tortillur 3 Rose Poultry kjúklingabringur, smátt skornar Filippo berio ólífuolía til steikingar Salt og pipar 1 krukka Pataks Madras sósa ½ gúrka ¼-½ rauðlaukur 1-2 hvítlauksrif, pressuð 25 g smjör 1 msk ferskt kóríander, smátt skorið Klettasalat eða salatblanda 1 dós hreint jógúrt 3 msk Pataks Mango chutney Ferskt kóríander

 Aðferð

  1. Steikið smátt skorinn kjúklinginn upp úr ólífuolíu og kryddið með salti og pipar eftir smekk.

  2. Blandið Madras sósunni saman við og hrærið.

  3. Skerið gúrku og rauðlauk smátt og blandið saman í skál.

  4. Hrærið jógúrti og mangó chutney saman í skál.

  5. Bræðið smjör við vægan hita og setjið hvítlauksrif, kóríander, salt og pipar saman við.

  6. Penslið báðar hliðarnar á taco tortillunum með smjörblöndunni. Leggið þær á bökunaplötuþakta bökunarpappír og bakið í ofni í 5-7 mínútur við 190°C.

  7. Setjið að lokum salat, kjúkling, gúrku, rauðlauk og Mango chutney sósu í tortillurnar. Stráið kóríander yfir eftir smekk.

Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti


Samstarf við Innnes

Comments


bottom of page