top of page

TIKKA MASALA VEFJUR

  • Jan 1
  • 2 min read

Hér kemur uppskrift að vefjum með osti og kjúklingi í Tikka masala sósu bornar fram með sætkartöflufrönskum, mango chutney sósu og fersku salati. Ótrúlega gott og allir á heimilinu elska þetta.

4 kjúklingabringur 1 krukka Tikka masala sósa frá Pataks Ólífuolía Salt & pipar Rifinn mozzarella ostur Philadelphia rjómaostur Missioni tortillur með grillrönd

Sætkartöflufranskar 1 sæt kartafla 1-2 msk Madras paste frá Pataks 2 msk ólífuolía

Mangó chutney sósa 1 dl sýrður rjómi 1 dl Heinz majónes 3-4 msk Mango chutney frá Pataks 1 msk safi úr sítrónu Salt & pipar

Ferskt salat 1 dl agúrka 1 dl rauðlaukur Spínat eftir smekk Salatdressing (má sleppa, en mæli samt með!) 1 msk ólífuolía 1 msk safi úr ferskri sítrónu Salt & pipar Garam masala krydd 1 msk ferskur kóríander, smátt skorinn

Aðferð

  1. Skerið kjúklinginn í litla bita. Steikið hann upp úr ólífuolíu og saltið og piprið. Blandið Tikka masala sósunni saman við kjúklinginn og hrærið.

  2. Smyrjið tortillurnar með rjómaosti, stráið mozzarella osti yfir og dreifið kjúklingnum ofan á. Gott að dreifa öllu á annan endann á tortillunni, brjóta hana saman eins og umslag og rúlla henni upp.

  3. Raðið vefjunum í eldfast form og penslið þær með ólífuolíu. Bakið í ofni í 10 mínútur við 190°C á blæstri.

  4. Skerið tortillurnar í tvennt og berið fram með salatinu, sósunni og sætkartöflufrönskunum.

Sætkartöflufranskar

  1. Skerið kartöfluna í strimla. Veltið þeim uppúr Madras paste, salti, pipar og ólífuolíu.

  2. Bakið í elföstu móti í 30-40 mínútur við 190°C. Mæli með að hræra aðeins í á meðan þetta bakast. Mango chutney sósan passar svo sérlega vel með frönskunum.

Ferskt salat

  1. Skerið gúrku, rauðlauk og spínat smátt. Blandið öllu saman í skál. 

  2. Hrærið saman ólífuolíu, safa úr sítrónu, kryddi og ferskum kóríander og blandið saman við salatið.

Mangó chutney sósa

  1. Blandið öllu hráefninu saman með skeið.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti

Comments


bottom of page