TACOS MEÐ BBQ BLEIKJU & MANGÓSALSA
- Jan 2
- 1 min read
Fiskur þarf sko alls ekki að vera leiðinlegur og hér kemur bleikja í afar góðum búningi. Ljúffengt taco með BBQ bleikju, mangósalsa, sýrðum rjóma með jalapeno Tabasco, vorlauk og sesamfræjum. Þessi samsetning er ofur góð og öll hráefnin vinna vel saman. Ferskt, gott og fljótlegt og ég mæli með að þið prófið.

Fyrir tvo 500 g bleikja 2-3 msk Heinz BBQ sósa Salt & pipar Litlar tortillur 1,5 dl sýrður rjómi
1-2 tsk jalapeno Tabasco Romaine salat eða annað salat 1 vorlaukur Sesamfræ
Mangósalsa 1 tómatur ½ mangó 1 avókadó Safi úr ½ lime
Aðferð:
Leggið bleikjuna á bökunarplötu þakta bökunarpappír. Saltið og piprið bleikjuna og smyrjið hana með BBQ sósunni.
Bakið í ofni við 190°C í 12-15 mínútur.
Smátt skerið tómat, mangó og avókadó. Blandið saman í skál ásamt safa úr lime.
Hrærið saman sýrðum rjóma og jalapeno Tabasco sósu.
Skerið vorlauk smátt og skerið romaine salatið í strimla.
Steikið tortillurnar uppúr ólífuolíu og smyrjið þær með sýrða rjómanum. Dreifið salatinu, salsanu og fiskinum yfir. Toppið með vorlauk og sesamfræjum.

Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti
Samstarf við Innnes















Comments