top of page

FLJÓTLEG BLEIKJA MEÐ FETAOSTI, HUNANGI & PISTASÍUM

  • Jan 1
  • 1 min read

Bleikja með stöppuðum fetaosti, hunangi og pistasíum sem er fljótleg og afar bragðgóð. Gott að bera fram með fersku grænmeti, kartöflum, rótargrænmeti og kaldri sósu.

Fyrir tvo-þrjá 500 g bleikja Ólífuolía Salt & pipar 100 g hreinn fetaostur 1-2 msk hunang 70 g pistasíur

 

Aðferð

  1. Smátt skerið pistasíur og stappið fetaostinn.

  2. Leggið bleikjuna á bökunarplötu þakta bökunarpappír.

  3. Dreifið ólífuolíu yfir og saltið og piprið eftir smekk.

  4. Dreifið fetaostinum yfir bleikjuna ásamt hunanginu og pistasíunum.

  5. Bakið í 15 mínútur við 200°C eða þar til bleikjan er fullelduð. Njótið með góðu meðlæti.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti

Comments


bottom of page