BBQ QUESADILLAS Á EINNI PLÖTU
- Feb 11
- 1 min read
Það er fátt þægilegra en að setja allt á eina ofnplötuð, baka og njóta. Þessi réttur er fullkominn þegar þið viljið deila með fjölskyldu eða vinum. Stökk tortilla að utan, nautahakk með Hunts BBQ-sósu, tómatar og bráðinn cheddar að innan. Toppa svo með sýrðum rjóma, avókadó, kóríander og fersku salati. Ísköld Corona hliðina gerir svo máltíðina enn betri.

500 g nautahakk
1 meðalstór laukur, saxaður
1 ferskt chili, saxað (eða smá chiliflögur)
1 ½ dl Hunts BBQ sósa
2 dl smátt skornir tómatar
200 g rifinn cheddar ostur
8 stórar tortilla kökur
Ólífuolía til penslunar
Salt og pipar
Til að toppa:
Sýrður rjómi
1 avókadó, skorið í sneiðar
Ferskur kóríander
Lime
Ferskt chili í sneiðum (má sleppa)
Aðferð
Hitið ofninn í 200°C og klæðið ofnplötu með bökunarpappír.
Steikið nautahakkið á pönnu þar til það er brúnað. Bætið lauk og chili út á pönnuna og steikið áfram í nokkrar mínútur þar til laukurinn mýkist.
Hellið Hunts BBQ-sósunni út í og hrærið vel saman. Smakkið til með salti og pipar.
Leggið 7-8 tortillur á bökunarplötu þakta bökunarpappír þannig að þær liggi aðeins yfir hvor aðra. Þetta á að mynda botninn.
Dreifið nautahakksblöndunni yfir botninn, smátt skornum tómötum og rifnum cheddar osti yfir.
Leggið restina af tortillunum (ég notaði eina) í miðjuna ofan á sem lok og brjótið brúnirnar inn þannig að þær hylji fyllinguna. Penslið toppinn með ólífuolíu.
Bakið í 20–25 mínútur eða þar til toppurinn er gullinbrúnn og stökkur.
Skerið sneiðar og berið fram með sýrðum rjóma, avókadó, fersku salati, kóríander, lime og chili og njótið vel.




Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti Samstarf við Innnes















Comments