ÓMÓTSTÆÐILEGIR TORTILLU ÞRÍHYRNINGAR
- Jan 2
- 1 min read
Ljúffengar og djúsí fylltar tortillur fylltar með rjómaosti (að sjálfsögðu Philadelphia), cheddar osti, kjúklingi, tómötum og laukhring. Ég loka þeim þannig að þær mynda þríhyrning sem auðvelt er að borða með höndunum og dýfa í sósur. Snilldar uppskrift sem hentar vel sem kvöldmatur eða í partýin sem eru framundan. Laukhringirnir setja punktinn yfir i-ið og gera þetta extra djúsí.

2 kjúklingabringur frá Rose Poultry 1-2 msk ólífuolía Krydd: ½ tsk laukduft, ½ tsk hvítlauksduft, ½ tsk cumin,
1 tsk salt, ¼ tsk chili (eða eftir smekk) Stórar tortillur Philadelphia rjómaostur Rifinn cheddar ostur Smátómatar eða kokteiltómatar Laukhringir (frosnir)
Berið fram með sósum eftir smekk: Heinz hvítlaukssósu Salsasósu frá Mission Guacamole
Aðferð
Byrjið á því að skera kjúklingin mjög smátt.
Blandið kjúklingnum saman við ólífuolíu og kryddið.
Dreifið honum í eldfastx mót og bakið í 20-25 mínútur við 195°C.
Bakið laukhringina eftir leiðbeiningum og smátt skerið tómata.
Skerið tortillur í tvennt.
Smyrjið tortillurnar með rjómaosti og dreifið cheddar osti eftir smekk yfir.
Dreifið 2 msk af kjúklingi í miðjuna, 1 msk tómötum og setjið laukhringin ofan á.
Lokið tortillunni með því að mynda þríhyrning (sjá mynd fyrir neðan).
Penslið tortillurnar með ólífuolíu og dreifið á ofnplötu þakta bökunarpappír.
Bakið í ofni við 190°C í 6-8 mínútur og berið fram með sósum eftir smekk.



Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti
Samstarf við Innnes















Comments