top of page

BBQ TAQUITOS

  • Feb 7
  • 2 min read

Stökkar taquitos fylltar með rifnum kjúklingi í BBQ sósu og rifnum osti, bornar fram með heimagerðri ranch sósu og ferskum maís. Þetta er mjög bragðgóður og djúsí réttur sem allir elska á heimilinu!  En hey, ekki láta fjölda á kryddum í sósunni stoppa þig! Hún er alveg sjúklega góð og það er mjög gott að nota þurrkað krydd í stað fersku kryddjurtanna eða þið getið sleppt einhverjum kryddum sem þið fílið ekki. Mér finnst skipta mestu máli að smakka hana til.


1/2 kjúklingur, rifinn (gott að kaupa tilbúinn heilan kjúkling)

2 dl Hunt’s BBQ Honey Mustard sósa 

Salt & pipar

Litlar tortillur

Philadelphia rjómaostur

Rifinn cheddar ostur


Ranch sósa

1 dl Heinz majónes

1 dl sýrður rjómi

1 msk safi úr lime

1 msk smátt skorinn jalapeno úr krukku

1 msk dill (ferskt eða þurrkað)

1 msk fersk steinselja (má vera þurrkað)

1 msk ferskur kóríander (má vera þurrkað)

1 tsk salt

1/4 tsk pipar

1 tsk laukduft

1/2 tsk hvítlauksduft


Maísblanda

2 ferskir maískólfar

1 dl stappaður fetaostur

2 msk Heinz majónes

1 tsk cayenne pipar

2 msk ferskur kóríander, smátt skorinn

Aðferð:

  1. Rífið kjúklinginn smátt, setjið í skál og blandið BBQ sósu, salti og pipar saman við.

  2. Smyrjið tortillurnar með rjómaosti. Dreifið cheddar ostinum yfir, setjið 2-3 msk af kjúklingnum á tortillurnar og rúllið þeim upp.

  3. Blandið saman í sósuna.

  4. Steikið tortillurnar uppúr ólífuolíu þar til þær verða stökkar og gylltar. Það er einnig mjög gott að dreifa þeim á bökunarplötu þaktri bökunarpappír, pensla þær með ólífuolíu og baka í ofni við 190°C í 6-8 mínútur eða þar til þær eru orðnar stökkar.

  5. Berið fram með ranch sósu og ferskum maís og njótið.

Maísblanda

  1. Pakkið maískólfunum í álpappír og bakið í 30 mínútur við 190°C.

  2. Skerið maískornin af og blandið saman við stappaðan fetaost, majónes, cayenne pipar og ferskan kóríander.



Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti


Samstarf við Innnes

Comments


bottom of page