top of page

OFNBAKAÐAR TORTILLARÚLLUR

  • Jan 2
  • 1 min read

Ljúffengar tortillarúllur fylltar með nautahakki, osti, sýrðum rjóma og tómötum bakaðar inn í ofni og bornar fram með guacamole og sýrðum rjóma. Þetta skemmtilegt twist á annars klassískum rétti og sniðugt í partýið. Mjög barnvænn og gómsætur.

Fyrir  3-4 500 g nautahakk Krydd: 1 tsk salt, ¼ tsk chili duft, ½ tsk cumin, ½ tsk reykt paprika, ½ tsk laukduft Tortillur frá Mission 1 laukur 2-3 hvítlauksrif, pressuð eða rifin 1 salsa sósa frá Mission Sýrður rjómi 4 tómatar, smátt skornir og fræhreinsaðir 6 ½ dl rifinn cheddar ostur1 dl rifinn mozzarella ostur

Aðferð

  1. Byrjið á því að steikja lauk og hvítlauk upp úr ólífuolíu. Bætið nautahakki saman við og kryddið.Hellið svo salsa sósunni út í og hrærið vel saman.

  2. Smyrjið hverja tortillu með 2 tsk sýrðum rjóma, dreifið rúmlega 1 dl af nautahakki yfir, stráið ½ dl cheddar osti yfir og 1-2 tsk af tómötum.

  3. Rúllið tortillunum upp og skerið svo í fjóra bita.

  4. Smyrjið eldfast mót með ólífuolíu og dreifið tortillarúllunum ofan í.

  5. Dreifið mozzarella og cheddar osti og restinni af tómötunum yfir.

  6. Bakið í 8-10 mínútur við 190°C.

  7. Stráið kóríander yfir eftir smekk og berið fram með heimagerðu guacamole og sýrðum rjóma.



Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti


Samstarf við Innnes

Comments


bottom of page